Tímarit lögfræðinga - 01.11.1986, Síða 62
Félagar eru nú 286, eða 11 fleiri en á aðalfundi 1985. Héraðsdómslögmenn
eru 172 og hæstaréttarlögmenn 114. Heiðursfélagi er Rannveig Þorsteinsdóttir
hrl. 13 félagsmenn eru 70 ára og eldri og eru þeir samkvæmt samþykktum
félagsins lausir undan skyldu til greiðslu árgjalda.
Eins og undanfarin ár voru stjórnarfundir haldnir reglulega hvern miðviku-
dag nema yfir hásumarið og um stórhátíðir. Alls voru haldnir 35 stjórnar-
fundir og á þeim voru 234 málsatriði bókuð.
Töluverður hluti af starfstíma stjórnar fór í afgreiðslu margs konar kæru-
og ágreiningsmála, er fyrir hana voru lögð. Alls bárust 30 slík mál frá aðalfundi
1985, eða 5 fleiri en árið á undan. Mál þessi voru misjafnlega umfangsmikil,
en afgreiðsla þeirra var með þeim hætti, að úrskurður var kveðinn upp í
1 máli, 8 mál voru afgreidd með álitsgerðum, 5 mál voru afturkölluð, 14 voru
felld niður og 2 málum var ólokið.
Dagana 5. og 6. september 1985 héldu stjórnir lögmannafélaga á Norður-
löndum fund í Reykjavík, en slfkir fundir eru haldnir annað hvert ár til skiptis
í löndunum fimm. L.M.F.Í. hefur tekið þátt í þessu norræna samstarfi lög-
mannafélaga frá 1959, og eru þetta einu föstu erlendu samskiptin, sem félag-
ið er þátttakandi í. Þátttakendur af hálfu L.M.F.Í. á fundinum í Reykjavfk voru
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., formaður, Páll A. Pálsson hrl., varaformaður,
Eiríkur Tómasson hrl., gjaldkeri, Ragnar Aðalsteinsson hrl., sem flutti erindi
á fundinum, og Hafþór Ingi Jónsson hdl., framkvæmdastjóri félagsins. Fyrst á
dagskrá voru umræður um skýrslur félaganna um starfið frá því að síðasti
fundur var haldinn. Þá voru meðal dagskrárliða 3 málaflokkar:
1. Hvaða kröfur á að gera um fræðilega og hagnýta menntun lögmanna?
2. Mistök lögmanna við ráðgjöf og ýmsar afleiðingar í því sambandi. í
þessum málaflokki var Ragnar Aðalsteinsson hrl. framsögumaður.
3. Skoðun lögmannafélaganna á OECD-skýrslu um starfsemi ýmissa sjálf-
stætt starfandi þjónustuaðila.
Fréttabréf félagsins kom út 5 sinnum á starfsárinu. Birtast þar m.a. úrskurð-
ir og álitsgerðir stjórnarinnar, sem talið er að hafi almennt gildi fyrir lögmenn.
Þá er í Fréttabréfinu gerð grein fyrir ýmsum öðrum störfum stjórnarinnar og
málum, er tengjast starfi lögmanna.
Almenn félagsstarfsemi var með svipuðum hætti og undanfarin ár. Áður hef-
ur verið minnst á félagsfundina og á starfsárinu hafa verið haldin skák- og
golfmót fyrir lögmenn og gesti þeirra. Þá stóð félagið fyrir jólatrésskemmtun
fyrir börn og barnabörn félagsmanna og starfsfólks þeirra.
í apríl var haldið fræðslunámskeið á vegum félagsins. Voru þar teknir fyrir
þættir úr stjórnarfarsrétti undir umsjón Björns Þ. Guðmundssonar, prófessors.
Undanfarin ár hefur félagið efnt til náms- og skemmtiferða til ýmissa landa
fyrir félagsmenn og maka þeirra. í október var farið alla leið til ísrael. Meðal
dagskrárliða í heimsókninni voru kynnisferðir til dómstóla og ísraelska lög-
mannafélagsins.
Á starfsárinu lét stjórnin frá sér fara ályktanir um hin ýmsu mál. Skal hér
vikið að nokkrum þeirra. í fyrravor samþykkti stjórnin umsögn um frumvarp
til laga um ríkislögmann, sem þá hafði nýlega verið lagt fram á Alþingi. I um-
sögninni kom m.a. fram, að stjórnin taldi ekki þörf á að koma á fót sérstakri
stofnun til að annast málflutning fyrir ríkið svo sem frumvarpið ráðgerði. Gætu
208