Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Side 32
hugmyndir manna um rétt og rangt og um leið breytni manna til
samræmis við þarfir samfélagsins. Samfélag manna þar sem ekki liggja
við refsingar við glæpum eins og morðum og nauðgunum er óhugsandi
að hans mati og fær ekki staðist til lengdar. Það myndi fljótlega leys-
ast upp í stjórnleysi og villimennsku. M.ö.o.: réttlæting refsingarinnar
er ekki fólgin í sjálfum verknaðinum sem verið er að refsa fyrir, held-
ur í þörfinni fyrir að halda uppi reglu í sambúð manna. Sú staðreynd
að mönnum er sífellt refsað fyrir meingjörðir af því tagi sem nefndar
eru að framan hefur úrslitaáhrif við mótun siðferðisviðhorfa sem eru
andstæð þeim, en það er hins vegar nauðsynlegt til að viðhalda mann-
legu samfélagi og til að ná sammannlegum markmiðum.38
4. KARL OLIVECRONA 3»
Á sama hátt og Lundstedt byggir Olivecrona í ríkum mæli á þeim
þekkingarfræðilega grunni sem Hágerström lagði. Að hinu leytinu má
segja að hann betrumbæti verk Lundstedts, enda eru verk hans sjálfs
laus við þann ákafa og ónákvæmni sem einkenna svo mjög verk
Lundstedts. Þó má segja að hann leggi svolítið aðrar áherslur.
Höfuðrit Olivecrona er Law as a Fact, sem kom fyrst út 1939. Árið
1971 kom út önnur útgáfa af þessu riti. I innganginum að síðari út-
gáfunni segir hann að ekki sé um að ræða aðra útgáfu af fyrra verk-
inu í venjulegum skilningi þess orðs, heldur sé í raun um nýtt verk
að ræða með sama nafni. Hann hafi viljað nota sama nafnið þar sem
hann treysti sér ekki til að finna neitt annað sem betur lýsti kjarn-
anum í kenningum hans.40 1 því yfirliti sem hér verður gefið yfir
kenningar Olivecrona er aðallega stuðst við síðari útgáfuna.
4.1. Olivecrona og þekkingarfræðin
Sem áður segir byggir Olivecrona á þeim þekkingarfræðilega grunni
38 Sjá t.d. í þessu sambandi Lundstedt: Superstition and Rationality in Action for Peace?,
s. 33—54. Ennfremur „Principinledning. Kritik av straffrattens grundáskaadningar", 1920,
og Till Frágan om Riitten och Samhallet, 1921.
39 Karl Olivecrona (1897—1979) var aðstoðarprófessor við lagadeild háskólans í Uppsölum
og síðar prófessor við liáskólann í Lundi. Helsta rit hans er Law as a Fact, London 1971.
Hann hafði að vísu gefið út annað rit undir þessu heiti 1939, en endurskrifaði það síðar.
í þvf kemur fram kjarninn f réttarheimspeki hans. í þessari samantekt er aðallega
stuðst við þetta rit. Af öðrum ritum um réttarheimspekileg efni má nefna Rcittsordningen,
Lundi 1966, The Problem of the Monetary Unit, 1957. Eins og Lundstedt skrifaði
Olivecrona lielstu réttarheimspekirit sín á ensku.
40 Law as a Fact, s. vii.
162