Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Síða 50
Frá
Dómarafélagi
Islands
SKÝRSLA STJÓRNAR DÓMARAFÉLAGS ÍSLANDS
STARFSÁRIÐ 1987-1S88, LÖGÐ FRAM Á DÓMARA-
ÞINGI 3.-4. NÓVEMBER 1988
I. STJÓRN DÓMARAFÉLAGS ÍSLANDS.
Aðalfundur Dómarafélags íslands árið 1987 var haldinn á Hótel Sögu 12.
og 13. nóvember. Þá voru eftirtaldir kjörnir I stjórn félagsins: Friðgeir Björns-
son, yfirborgardómari, formaður; Friðjón Guðröðarson, sýslumaður; Haraldur
Henrýsson, sakadómari; Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður; Valtýr Sigurðs-
son, borgarfógeti. Varastjórn: Már Pétursson, sýslumaður og bæjarfógeti;
Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari.
Stjórnin kaus Friðjón varaformann, Harald ritara og Valtý gjaldkera. Stjórn-
in hefur haldið 8 bókaða fundi á starfsárinu.
II. SKIPUN í DÓMARAEMBÆTTI.
Eftirtaldir hafa verið skipaðir í dómaraembætti á starfsárinu: 1. 1. 1988 Valtýr
Sigurðsson, borgarfógeti; 1. 1. 1988 Sveinn Sigurkarlsson, héraðsdómari;
II. 2. 1988 Benedikt Blöndal, hæstaréttardómari.
III. LAUSN FRÁ EMBÆTTUM.
Eftirtaldir hafa fengið lausn frá embættum: 1. 1. 1988 Magnús Torfason,
hæstaréttardómari; 1. 6. 1988 Barði Þórhallsson, bæjarfógeti; 1. 9. 1988 Sig-
urður Helgason, bæjarfógeti og sýslumaður.
IV. SETNING í EMBÆTTI.
Eftirtaldir hafa verið settir í embætti á starfsárinu og eru við lok þess:
1. 2. 1988 Þorsteinn Skúlason, héraðsdómari; 1. 2. 1988 Ólafur K. Ólafsson,
bæjarfógeti; 15. 3. 1988 Tryggvi Gunnarsson, borgardómari; 1. 5. 1988 Gréta
Baldursdóttir, borgarfógeti; 1. 9. 1988 Haraldur Henrýsson, hæstaréttardómari;
1. 9. 1988 Hjörtur Aðalsteinsson, sakadómari; 1. 9. 1988 Sigurður Helgason,
bæjarfógeti og sýslumaður.
V. FÉLAGSMENN.
í 2. gr. laga Dómarafélags íslands er kveðið á um það hverjir séu félags-
menn. Að dómarafulltrúum frátöldum ræður skipun félagsaðild. Hins vegar
hefur ætíð verið litið svo á að settir dómarar ættu aðild að félaginu og þeir
180