Tímarit lögfræðinga - 01.11.1988, Page 58
Önnur regluleg útgáfa á vegum félagsins er útsending hæstaréttardóma
til ýmissa áskrifenda nokkurn veginn jafnóðum og dómarnir eru kveðnir upp.
Er þessi útgáfa fyrst og fremst hugsuð sem bráðabirgðalausn, þar til dóm-
arnir með tilheyrandi héraðsdómum eru gefnir út, enda nauðsynlegt fyrir lög-
menn og aðra lögfræðinga að geta kynnt sér sem fyrst uppkveðna dóma
Hæstaréttar. Þessi þjónusta félagsins hefur nú verið innt af hendi á annað
ár og verða rúmlega 50 lögmannsskrifstofur hennar aðnjótandi.
Almenn félagsstarfsemi var með svipuðum hætti og undanfarin ár. Áður
hefur verið minnst á félagsfundina, og á starfsárinu hafa verið haldin skák-
og golfmót fyrir lögmenn og gesti þeirra. Þá stóð félagið fyrir jólatrésskemmt-
un fyrir börn og barnabörn félagsmanna og starfsfólks þeirra.
Dagana 17. og 18. ágúst 1987 héldu stjórnir lögmannafélaga á Norður-
löndum fund í Helsinki, en slíkir fundir eru haldnir annað hvert ár til skiptis
í löndunum fimm. Lögmannafélag íslands hefur tekið þátt í þessu norræna
samstarfi lögmannafélaga frá árinu 1959. Um beina þátttöku í annarri alþjóð-
legri samvinnu lögmannafélaga er ekki að ræða af hálfu félagsins. Kemur þó
til álita og hefur verið rætt nokkuð innan stjórnar, að félagið gerist aðili að
alþjóðasamtökum lögmanna — International Bar Association — en í þeim
samtökum eru öll lögmannafélög í Vestur-Evrópu og raunar flest lögmanna-
félög hvar sem þau eru annars á hnettinum. Þátttakendur af hálfu L.M.F.Í. á
fundinum í Helsinki voru stjórnarmennirnir Sveinn Snorrason, Hákon Árna-
son og Gestur Jónsson svo og Hafþór Ingi Jónsson framkvæmdastjóri. Að
loknum umræðum um starfsemi félaganna frá síðasta fundi, sem haldinn
var í Reykjavík f september 1985, voru á dagskrá 3 málaflokkar:
1. Staða skipaðs verjanda — að því er varðar launakjör o.s.frv. (Den be-
skikkede forsvarers erhvervsmæssige situation).
2. Lögmenn og fjölmiðlar (Advokaterne og medierne).
3. Breytingar á lögmannsstörfum — ráðstafanir til þess að mæta sam-
keppni frá öðrum ráðgjöfum (Advokatvirksomheden i forandring — pro
duktudvikling og foranstaltninger til at imodegá konkurrence fra andre
rádgivere).
Hinn 1. september 1987 tóku gildi ákvæði bráðabirgðalaga nr. 68/1987,
þar sem m.a. var kveðið á um innheimtu sérstaks söluskatts af lögfræðiþjón-
ustu. Sams konar ákvæði eru nú í nýjum söluskattslögum nr. 1/1988. Upp-
haflega var söluskattsprósentan 10%, en hækkaði síðar í 12%.
Segja má, að það hafi legið í loftinu í nokkur ár, að lagður yrði sölu-
skattur á þjónustu lögmanna og fleiri sjálfstætt starfandi þjónustugreina.
Stjórn félagsins hefur lagst gegn hugmyndum stjórnvalda um þennan sölu-
skatt, en slíkar hugmyndir hafa komið fram öðru hverju á undanförnum ár-
um. Röksemdir stjórnar gegn söluskatti af þessu tagi komu skýrt fram í
ályktun hennar frá 18. september 1985, sem þá var kynnt stjórnvöldum og
ávallt slðan áréttuð, þegar umræður um málið hófust á ný. Þar til á síðast-
liðnu ári virðist sem stjórnvöld hafi metið röksemdir félagsins gegn álagn-
ingu söluskatts góðar og gildar. A.m.k. hafði þrlvegis verið fallið frá áform-
um um söluskatt af lögfræðiþjónustu. Þykir rétt á þessum vettvangi að víkja
nokkuð að umræddri stjórnarályktun, en í henni sagði m.a.:
188