Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 10

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 10
eða hagsmunir þessir skyldu veittir án endurgjalds, skal gerningur sá, er þannig er til kominn, ógildur gagnvart þeim aðila sem á var hallað með honum. Sama gildir þótt annar maður en sá, sem gerningur var gerður við, eigi sök á misferli því sem getið erí 1. málsl. þessarargreinar, endasé þeim, er haginn átti að hafa af gerningnum, það kunnugt eða megi vera það kunnugt. Vandinn sem þessari reglu er ætlað að leysa er í stuttu máli sá að til eru menn sem notfæra sér einfeldni, fákunnáttu eða léttúð annarra til þess að áskilja sér meiri hagsmuni en eðlilegt getur talist miðað við kringumstæður. Til að taka á þessum vanda er sett tilvitnuð lagaregla. Lögfræðingar hafa kosið að kalla þá hegðun sem reglan lýsir „misneytingu", en almenningur kallarþetta einfaldlega svindl og svínarí. Gerum nú ráð fyrir að með tímanum komi í ljós að reglan sé ekki fullnægjandi og endurskoðunar sé þörf. Endurskoðunarstarfið felst m.a. í því að kanna rétt annarra ríkja. Eitt af þessum ríkjum er Frakkland. Þegar að er gáð kemur hins vegar í ljós að heildarákvæði um það sem íslenskir lögfræðingar kalla misneytingu er ekki til í frönskum rétti. Nú er auðvelt að hrapa að þeirri ályktun að slíkt svínarí sé annað hvort látið viðgangast í Frakklandi eða þá að þar séu allir svo heiðarlegir að engin þörf sé fyrir svona ákvæði. Fyrirmynda verði því ekki leitað þar. Þegar betur er að gáð kemur þó í ljós að í frönskum rétti er að finna ákvæði sem nokkur saman gegna sama eða svipuðu hlutverki og misneyt- ingarákvæðið í íslensku samningalögunum. Vandinn er til staðar í Frakklandi, en leitast er við að leysa hann eftir öðrum leiðum. í ljós kemur að það er ekki neitt eitt ákvæði í frönskum rétti sem gegnir hlutverki misneytingarákvæðisins, heldur eru þau nokkur. Sem dæmi má nefna sérstaka reglu um vaxtaokur, en þar er heimild til lækkunar vaxta ef viðsemjandi þykir hafa áskilið sér hærri vexti en hæfilegt þykir. Einnig er að finna sérreglu um fasteignakaup þar sem t.d. er gert ráð fyrir því að ógilda megi samning ef eign er seld undir 7/12 af raunverulegu verðgildi, sbr. Code civil gr. 1674. Þá má nefna að franskir dómstólar hafa stundum ógilt samninga vegna þess sem kalla má ónógar ástæður (cause) eða vegna rangrar (fausse) eða ólögmætrar (illicite) ástæðu á grundvelli gr. 1131-1133 í Code civil!0 Þ.e. ekki verður komið auga á neinar skynsamlegar ástæður fyrir því að samningur er tiltekins efnis. Þessi ákvæði og ýmis önnur gera það að verkum að síður er þörf fyrir sérstakt ákvæði um það sem íslenskir lögfræðingar kalla misneytingu. Til þess að samanburðurinn verði marktækari getur einnig verið nauðsynlegt að skoða aðrar reglur fransks samningaréttar, t.d. um form samninga, skráningu o.s.frv. Þessar reglur geta verið þannig úr garði gerðar að í sumum tilfellum sé minni hætta á að misneytingartilfelli komi upp og vandinn því annar eða minni fyrir bragðið. 10 Sjá t.d. Páll Sigurðsson, Kringsjá: Þættir um erlendan rétt og samanburðarlögfræði, Rvík 1989, s. 50 (hér eftir vísað til sem Páll Sigurðsson). 208

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.