Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 28

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 28
aðilum.22 Traustssjónarmiðin byggja hins vegar á því að dómari verði að víkja ef fyrirliggjandi aðstæður eru almennt til þess fallnar að draga úr trú á óhlutdrægni venjulegs dómara.23 Stundum kunna tiltekin tengsl dómara við mál eða aðila þess að vera svo fjarlæg að ekki sé rétt að telja dómara vanhæfan vegna þeirra. Hins vegar kann dómari að tengjast málinu eða aðilum þess áfleiri en einn veg. Enda þótt hvert og eitt tilvik (tengsl), nægði ekki til þess að valda vanhæfi dómarans kunna þau saman að vera til þess fallin að veikja tiltrú á óhlutdrægni hans að því marki, að ástæða kunni að vera til að telja dómara vanhæfan til meðferðar málsins. 4.2 Arekstur hagsmuna Því hefur stundum verið haldið fram að megintilgangur hæfisreglnanna sé að koma í veg fyrir árekstur hagsmuna sem í sjálfu sér væru eðlilegir og réttmætir.24 Við könnun á dómum, sem gengið hafa um hæfi dómara á Islandi, kernur í ljós að í flestum tilvikum er um „eðlilega" hagsmuni að ræða sem rekast á. Séu tengsl dómara við mál hins vegar með óeðlilegum25 og jafnvel ólögmætum hætti verður það oftast til þess að auka vafann um óhlutdrægni hans. Hafi dómari haft afskipti af máli sem stjórnsýsluhafi, og telja má afskipti hans venjuleg og eðlileg miðað við starfsskyldur hans sem stórnsýsluhafa, er það ekki sjálfgefið af þeirri ástæðu að hann sé hæfur til að dæma málið.26 4.3 Starfsheiður dómara Vikning dómara, sem hætta er á að fái ekki litið hlutdrægnislaust á málavöxtu, stuðlar ekki aðeins að trausti almennings á dómstólunum og eykur trú á nröguleika þeirra til að komast að málefnalegri niðurstöðu heldur verndar hún einnig starfsheiður og traust dómara persónulega með því að gefa honum kost á að víkja sæti í slíkum tilvikum og komast hjá neikvæðri umfjöllun. Þá væri það einnig mjög óeðlilegt og óheppilegt fyrir einkalíf dómara ef honum væri t.d. komið í þá aðstöðu að þurfa dæma í máli nákomins ættingja. 4.4 Hagsmunir þess er veldur vanhæfi dómara Við umfjöllun um hinar sérstöku hæfisreglur gleymast oft hagsmunir þess sem veldur því að dómari telst vanhæfur. Mönnum hættir til að álykta ætíð svo að sá aðili, t.d. venslamaður dómara, muni ætíð fá hagstæðari úrlausn. Svo þarf þó alls ekki að vera, því að sé dómari meðvitaður um hættuna á hlutdrægni vegna tengsla sinna við venslamann kann hann að meta honum allan vafa í óhag. Auk 22 Sjá t.d. ummælí í HRD 1959 657; HRD 1969 891 og HRD 1970 977. 23 Frihagen, A.: Inhabilitet, 109-111. 24 Sjá t.d. Rönsholdt, S.: Om dommeres specielle habilitet, 279. 25 Sjá hér til skoðunar HRD 1962 12. 26 A þessari skoðun virðist örla í röksemdum héraðsdóms, sjá HRD 1987:1146. 226
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.