Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 46

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 46
forsetaembættinu í stað hins eiginlega forseta2. Ölafur Jóhannesson áleit vafasamt, hvort slík skipun væri heppileg, þótt ekki væri kunnugt, að hún hefði gefizt illa hér á landi.3 Að mínum dómi er fjölskipað forsetavald óheppilegt einkum af tveimur ástæðum. II. Annars vegar er það slæmur kostur, að ágreiningur kunni að rísa við framkvæmd starfa forsetaembættis, sem samkvæmt stjórnlögum og eðli sínu á að vera sameiningartákn og utan og ofan við pólitískar deilur. Slíkt getur þó auðveldlega hent til dæmis við stjórnarmyndanir eða þegar til álita kæmi, að einhver eða einhverjir handhafa forsetavalds vildu neyta réttar 26. gr. stjórnar- skrárinnar til þess að synja lagafrumvarpi staðfestingar. Við stjórnarmyndun væri fráfarandi forsætisráðherra einn af handhöfum forsetavaldsins og forseti sameinaðs Alþingis að öllum líkindum úr hópi stuðningsmanna fráfarandi ríkisstjórnar. Það er ekki ólíklegt, að sjónarmið þeirra tveggja, meirihluta handhafanna, kynni að vera nokkuð annað en forseta Hæstaréttar eða þjóðkjör- ins forseta. Umfram allt væri það bæði óeðlilegt og óheppilegt, að forseti Hæstaréttar væri settur í þá stöðu að þurfa að taka með öðrum þátt í svo pólitískum ákvörðunum, sem stjórnarmyndun er, og það þeim aðilum, sem þar hafa beinna pólitískra hagsmuna að gæta. Við slíkar aðstæður er viðbúið, að hann og Hæstiréttur gætu dregizt inn í stjórnmáladeilur, en slíkt myndi bæði skaða Hæstarétt og trúverðugleika dómsvaldsins í landinu.4 III. í annan stað er óheppilegt, að staðgenglar forseta íslands séu fleiri en einn, af þeirri ástæðu, að vafasamt er, að embættisathafnir þeirra fái stjórnskipulegt gildi, nema þeir standi að þeim allir saman. Um þetta eru án efa skiptar skoðanir. Þannig segir til dæmis Ólafur Jóhannesson: „Hjá handhöfum forseta- valds ræður afl atkvæða. Meirihluti þeirra, t.d. tveir þeirra, gætu sjálfsagt farið með forsetavald saman, t.d. undirritað veitingarbréf, staðfest lög o.s.frv. Eðlilegra væri þó, að staðgengill hvers þeirra um sig kæmi til, ef þeir væru forfallaðir, enda gætu orðið vandkvæði á því, ef tveir þeirra færu með forsetavaldið, en væru sinn á hvoru máli.“5 Sömu sjónarmiða gætir hjá Benedikt 2 Bjarni Benediktsson: Land og lýðveldi I. 187. Þar greinir frá ræðu höfundar á fundi landsmála- félagsins Varðar 21. janúar 1953, sem birt var í Morgunblaðinu 22.-24. janúar 1953. í þessari ræðu gerir höfundur grein fyrir sjónarmiðum sínum, Gunnars Thoroddsen og Jóhanns Hafstein í endurskoðunarnefnd stjórnarskrárinnar, sem skipuð var 1947 en skilaði ekki áliti. 3 Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun fslands, 131. 4 Sbr. Gunnar G. Schram: Um endurskoðun stjórnarskrárinnar, 70. 5 Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun íslands, 132. 244
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.