Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 48

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 48
þeirra niðurstöðu, ef ágreiningur rís. Hinu sama gegnir að sjálfsögðu um aðrar stjórnarathafnir forseta, svo sem veitingu embætta, þingrof eða staðfestingu samninga við önnur ríki. Hér mætti líta til tveggja dóma Hæstaréttar frá árinu 1984, HRD 1984 824 og HRD 1984 828, þar sem m.a. var deilt um lögmæti undirskriftar dómsmála- ráðherra sem handhafa forsetavalds í stað forsætisráðherra undir lög og nánar verður vikið að síðar. Hæstiréttur virðist hafna þeirri skoðun héraðsdómara eða a.m.k. ekki taka undir hana, að atbeini meirihluta handhafa forsetavalds að staðfestingu iaga nægi út af fyrir sig. Það leiðir af því, sem hér hefur verið sagt, að jafnan verður að tryggja, að handhafar forsetavalds eða varamenn þeirra, sbr. IV. kafla, séu staddir á landinu og tiltækir, þegar forseti íslands hyggst hverfa úr landi um stundarsakir eða mun hafa fyrirsjáanleg forföll. Þjóðhöfðingjaskyldur handhafa forsetavalds eru öllum öðrum skyldum þeirra æðri, og stjórnskipunarhlutverk forseta- embættisins er hvorki rækt né virt sem skyldi, ef þessa er ekki gætt til hins ítrasta. IV. Það er sérstakt athugunarefni, hvort og með hvaða hætti varamenn handhafa forsetavalds geti komið í þeirra stað og framkvæmt stjórnarathafnir forseta. Um það hafa engar sérstakar reglur verið settar. Þrátt fyrir hina persónubundnu stöðu forseta íslands og sérstæðu tilhögun um handhöfn forsetavaldsins verður allt að einu að líta svo á, að varamenn handhafanna geti komið til skjalanna að öðrum skilyrðum uppfylltum, enda væri skilvirkni stjórnkerfisins að öðrum kosti stefnt í óhæfilega tvísýnu. Það kann þó að skipta máli, með hvaða hætti varamenn eru kallaðir til. Það má telja ótvírætt, að varaforsetar í sameinuðu Alþingi og Hæstarétti hafi samkvæmt kjöri til þeirra starfa stöðuumboð til þess að koma í stað aðalforseta við meðferð valds forseta íslands.7 Hins vegar geta hvorki aðrir alþingismenn né aðrir dómarar í Hæstarétti komið í þeirra stað að þessu leyti. Þess er sérstaklega að geta, að ákvæði 2. mgr. 2. gr. laga um Hæstarétt íslands nr. 75/1973 um forsæti í dómi, þegar hvorki forseti né varaforseti sitja dóm, hafa ekki efnislega þýðingu í þessu sambandi. Aðstæður eru nokkuð á annan veg, þegar kemur að staðgengli forsætisráð- herra við meðferð forsetavalds. Samkvæmt 15. gr. stjórnarskrárinnar gefur forseti íslands á hverjum tíma út forsetaúrskurð um skiptingu starfa ráðherra, sbr. lög nr. 73/1969 um Stjórnarráð íslands og auglýsingu nr. 96/1969 um staðfestingu forseta íslands á reglugerð um sama efni með síðari breytingum. Þar er m.a. tilgreint, hver vera skuli forsætisráðherra og þar með einn þriggja 7 Sbr. Benedikt Blöndal: Eftir oröanna hljóðan, 111. 246
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.