Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 52

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Síða 52
V. Samkvæmt 58. gr. stjórnarskrárinnar skulu þingsköp Alþingis og beggja þingdeilda sett með lögum. í 1. gr. laga um þingsköp fyrir Alþingi nr. 115/1936 með síðari breytingum segir, að elzti þingmaðurinn skuli stjórna umræðum, þangað til forseti sameinaðs þings er kosinn, og standa fyrir kosningu hans. í 8. gr. þingskapalaga kemur fram, að kosning forseta, varaforseta og skrifara í sameinuðu þingi og báðum deildum sé fyrir allt það þing, en aftur á móti sé kosning til efri deildar og kjörbréfanefndar samkvæmt 4. gr. laganna fyrir allt kjörtímabilið. Það er þannig ljóst, að valdsvið forseta sameinaðs Alþingis takmarkast í raun samkvæmt ákvæðum laganna við hvert einstakt þing. Hins vegar hefur það tíðkazt, að forsetar Alþingis komi fram fyrir þess hönd milli þinga, einkum að því er varðar störf skrifstofu Alþingis og samskipti við önnur þjóðþing. Þá verður að ætla, að fráfarandi forseti sameinaðs Alþingis geti farið með hlutdeild sína í meðferð forsetavalds samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar milli þinga á einu og sama kjörtímabili, þar til nýr þingforseti hefur verið kjörinn, enda getur það ekki hafa verið ætlun stjórnarskrárgjafans að gera æðstu stjórn landsins jafnan óvirka, þegar Alþingi situr ekki og forseti íslands er fjarverandi eða hefur forfallazt. Hinu sama gegnir að þessu leyti um kjörna varaforseta sameinaðs Alþingis. Þegar Alþingi er rofið samkvæmt heimild eða skyldu í stjórnarskrá, sbr. 4. mgr. 11. gr., 24. gr. og 1. mgr. 79. gr., skapast hins vegar allt aðrar aðstæður um stöðu forseta sameinaðs þings og hlutdeild hans í meðferð forsetavalds. Það hefur verið talið heimilt hér á landi að láta þingrof ýmist taka gildi frá dagsetningu þingrofsúrskurðar, þótt skilyrði þingslita hafi þá enn eigi verið fyrir hendi, eða einhverjum tilteknum síðari degi og þá venjulega þeim degi, er kosningar fara fram.9 Þingrof hefur þau ótvíræðu áhrif, að umboð allra þingmanna fellur úr gildi frá gildistöku þess, og þar verða engar undantekningar gerðar á.'° Ólafur Jóhannesson segir, að eftir gildistöku þingrofs „ætti forsetum og þingnefndum í raun réttri að vera óheimilt að leysa af hendi þau störf, sem þeim eru annars ætluð milli þinga. Ekki hefur þó verið svo strangt í sakir farið í reyndinni, að því er varðar forseta þingsins og utanríkismálanefnd.“n í sama streng tók Bjarni Benediktsson.12 Ég tel það hins vegar ekki geta gengið við slíkar aðstæður, að fyrrverandi forseti sameinaðs Alþingis taki þátt í meðferð forsetavalds. Það brýtur að mínum dómi algjörlega í bága við grunnreglur stjórnlaga og væri raunar einnig í beinni andstöðu við grundvöll þeirrar sérstæðu tilhögunar, sem hér gildir um meðferð forsetavalds, þar sem oddvitar hinna 9 Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun Islands, 254. 10 Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun fslands, 253. 11 Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun íslands, 254. 12 Bjarni Bendiktsson: Ágrip af íslenzkri stjórnlagafræöi II, 22. 250
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.