Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 61

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Side 61
áhrif tæknin kann að hafa í för með sér við gerð stefna og þingfestingu þeirra. Ljóst er að fjölmörg önnur dæmi mætti taka úr viðskiptalífinu og af vettvangi stjórnsýslunnar. Meginatriðið er að sú þróun sem hér er lýst kemur án efa til með að verða að veruleika fyrr eða síðar, alveg með sama hætti og glasafrjóvgunin sem vikið var að í upphafi. Nauðsynlegt getur orðið að endurskoða löggjöf okkar í heild með sérstöku tilliti til þessa nýja háttar við staðfestingu löggerninga, þannig að núgildandi löggjöf verði ekki Þrándur í götu þróunar á þessu sviði. Kanna verður og aðlaga ákvæði í íslenskri löggjöf með hliðsjón af því að tölvur taki við sem hinn almenni miðill í viðskiptum einstaklinga sín á milli, svo og í samskiptum einstaklinga og hins opinbera. Einnig er vert að kanna hvort réttur sá sem mótast hefur vegna fordæma dómstóla kalli á lagabreytingar til þess að unnt verði að nota hinn nýja miðil á öllum sviðum viðskiptalífs. Þess má geta að þegar hefur verið gert ráð fyrir því í tollalögum nr. 55/1987 að samskipti við tollyfirvöld geti farið fram með öðrum hætti en skriflegum, þ.e. með aðstoð tölvu- og fjarskiptatækninnar. Vænta má frekari þróunar í samskipt- um sem þessum á næstu árum. Stór spurning er hversu fljótt þessari tækni muni fleygja fram? Erfitt er að svara því, en víst er að notkun tölvunnar fer sífellt vaxandi og nýir möguleikar hafa opnast varðandi skjalasendingar milli tölva, t.d. með gagnaflutningskerfi Pósts og síma. Samhliða eykst þrýstingur á að viðurkennd verði alþjóðleg aðferð til „undirskriftar" á löggerningum í tölvum og meira fé er varið til þess að þróa hana. Ekki þarf því að koma á óvart að viðunandi lausnir séu á næsta leiti og nýir tímar í tölvunotkun séu handan hornsins. 259

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.