Tímarit lögfræðinga - 20.12.1990, Page 71
næsta þings alþjóðasambandsins í Helsinki 17.-20. júní 1990. Drög að dagskrá
hafa þegar verið send aðildarfélögunum.
Svissnesku þátttakendurnir skýrðu frá því að vonir stæðu til þess að Dómara-
félag Sviss gæti boðið til þings alþjóðasambandsins í september árið 1991.
5. Þingið samþykkti að senda símskeyti til forseta Kolumbíu og einnig forseta
hæstaréttar þess lands til þess að tjá kólumbískum dómurum stuðning sinn og
samstöðu í lífshættulegri baráttu þeirra við skipulagða glæpastarfsemi. Skeytið
var sent samdægurs til Bogatá.
6. Að beiðni International Commission of Jurists tók forseti samtakanna
Gúnther Woratsch þátt í þriggja manna alþjóðlegri nefnd sem hafði það
hlutverk að rannsaka störf herdómstóla á þeim landsvæðum sem ísraelsmenn
hafa hertekið. Nefnd þessi skilaði niðurstöðum eftir að hafa dvalið í ísraelfrá25.
júní til 9. júlí 1989.
7. Hinn 13. og 14. desember 1989 átti nefnd dómara sem skipuð var einum
dómara frá hverju landi Evrópubandalagsins og var undir forsæti Gúnthers
Woratchs fund í Strassborg með fulltrúum frá Evrópuráðinu. Þar var fjallað um
framtíðarsamvinnu dómarafélaga í löndum Evrópubandalagsins annars vegar
og Evrópuþingsins og lagadeildar Evrópuráðsins hins vegar um framkvæmd
laga og reglna Evrópubandalagsins í aðildarlöndunum.
8. Alþjóðasamband dómara hélt ráðstefnu í Dóminikanska lýðveldinu í
samvinnu við tvær stofnanir Sameinuðu þjóðanna, UNICRI - United Nations
Interregional Institute for Crime Research and Justice - og ILANUD - Latin
American Institute of the United Nations for Crime Prevention and Treatment
of the Offender.
Á ráðstefnunni var fjallað um lög og lýðræðislega þróun í Rómönsku
Ameríku í samanburði við Ítalíu og önnur Evrópulönd. Ráðstefnan var haldin í
samvinnu við Hæstarétt Italíu og með fjárstuðningi utanríkisráðuneytis Italíu.
9. Stjórn sambandsins sem kosin er til tveggja ára í senn skipa eftirtaldir:
Formaður Gúnther Woratsch Austurríki, varformaður Arne Christiansen
Noregi. Aðrir í stjórn: Bernando Sa’Nogueira Portugal, Rainer Voss Vestur-
Þýskalandi, Philippe Abravanel Sviss og Mohammed Abdelghaffar Túnis.
FYLGISKJAL III
ÞING ALÞJÓÐASAMBANDS DÓMARA 1990
Sjá frásögn af þinginu sem birtist í 2. hefti tímaritsins 1990.
269