Tímarit lögfræðinga - 01.12.1991, Page 35
ástæða til að hafa bótareglu 6. mgr. 42. gr. tél. ávallt í huga, þegar banki eða
sparisjóður (sem tékkahafi) krefur tékkaskuldara um greiðslu tékka skv. 40. gr.,
sbr. 45. gr. tél.
15. LOKAORÐ
Það verður að teljast athyglisvert ef farið er yfir víxildóma sem gengu í
Landsyfirrétti og Hæstarétti á árabilinu 1882 til 1989, að ekki skuli vera að finna
einn einasta dóm þar sem höfð hefur verið uppi gagnkrafa til skuldajafnaðar á
grundvelli 6. mgr. 45. gr. vxl. Verður þó alls ekki sagt að lögmenn hafi skort
hugmyndaflug við að finna varnir sem komið verður að í málum reknum á
grundvelli 17. kafla eml. Við nánari skoðun á þessum dómum virðist þó ljóst að
það hefði verið raunhæfur kostur að gera slíka gagnkröfu í allnokkrum af
málunum.
Aðalástæða þess að ekki hefur reynt á 45. gr. vxl. fyrir Hæstarétti er vafalaust
sú að framseljendur víxla tilgreina sjaldnast heimilisfang sitt og hafa því oftast
ómeðvitað fallið frá rétti til tilkynningar. Hins vegar ætti þessi vörn ávallt að
koma til skoðunar varðandi útgefendur og ábyrgðarmenn.
Reglur 45. gr. vxl. og 42. gr. tél. eru mikilvægar í gangverki víxil- og
tékkaréttarins, en þær stuðla m.a. að því að halda mönnum að eðlilegum og
sanngjörnum viðskiptaháttum. Því er ekki að leyna að framkvæmd víxilréttarins
hlýtur að verða nokkuð önnur en hún ætti að vera undir eðlilegum kringumstæð-
um, þegar hvorki víxilhafar hirða um tilkynningaskyldu sína né víxilskuldarar
um bótarétt sinn skv. 45. gr. vxl.
HEIMILDASKRÁ
Aubert: Den nordiske Vexelret, K0benhavn 1882.
Comptes Rendus de la Conférence internationale pour l'unification du droit en matiére de lettres de
change, billets á ordre et cheques, Premiére session: Lettres de change et billets á ordre, Genéve
1930.
Eberstein, Gösta: Den svenska váxelrátten, Stockholm 1934.
Einar Arnórsson: Almenn meöferö einkamála í héraði, Reykjavík 1941.
Evaldsen: Vekselloven. Köbenhavn 1881.
Helper: Vekselloven og Checkloven af 1932, Kdbenhavn 1932.
Holmboe, C.S.: Anm. av Gösta Eberstein, Densvenska váxelrátten. Svensk juristtidning 1935,570-
572.
Holmboe, C.S.: Veksel- og sjekkretten. Forelseninger. Oslo 1938.
Jóhannes Sigurðsson: Orsakasamband í skaðabótarétti, Úlfljótur 2. tbl. 1990, 93-116.
Lyngsd, P.: Negotiable dokumenter, Köbenhavn 1972.
Lyngsó. P.: Vekselloven, Kobenhavn 1985.
Lyngs0, P.: Checkloven, K0benhavn 1985.
Ólafur Lárusson: Víxlar og tékkar, Reykjavík 1957.
Páll Hreinsson: Getur greiðslubanki verið tékkahafi? Tímarit lögfræðinga 2. hefti 40. árgangur
1990.
257