Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 13

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 13
anförnum árum. Tæmandi greinargerð um efni samþykktarinnar er hins vegar ærið viðfangsefni sem ekki er hægt að gera skil í stuttri tímaritsgrein sem þess- ari.3 Hef ég því ákveðið að fjalla sérstaklega í þessari ritgerð unr lögsögureglur Rómarsamþykktar um Alþjóðlega sakamáladómstólinn og lýsa því hvemig þær fela í sér málamiðlun á milli viðurkenningar á lögsögu alþjóðlegs dómstóls og fullveldi einstakra aðildarríkja. Rakin verða andstæð sjónarmið um það hve efnislega víðtæk lögsaga dómstólsins átti að vera og hvað lá að baki þeirri tog- streitu. Efnistök og uppbygging ritgerðarinnar eru með þeint hætti að í kafla 2 verð- ur stuttlega rakinn sögulegur aðdragandi að stofnun Alþjóðlega sakamáladóm- stólsins. I kafla 3 mun ég fjalla um meginreglu Rómarsamþykktarinnar um fyll- ingarlögsögu og taka afstöðu til túlkunar á einstökunr efnisákvæðum samþykkt- arinnar er lúta að útfærslu hennar. Loks verður í kafla 4 fjallað um það hvenær lögsaga Alþjóðlega sakamáladómstólsins verður virk, þ.e. grunnforsendur lög- söguvaldsins og beitingu lögsögunnar. 2. SÖGULEGUR AÐDRAGANDI AÐ STOFNUN ALÞJÓÐLEGA SAKAMÁLADÓMSTÓLSINS4 Hugmyndin um að nauðsynlegt væri að stofna alþjóðlegan sakamáladómstól svo að hægt væri að koma lögum yfir þá sem fremja glæpi sem alþjóðlegir eru í eðli sínu er ekki ný af nálinni. Rekja má slíkar hugmyndir allt aftur til mið- alda. Almennt er þó viðurkennt að elsta dæmið um stofnun alþjóðlegs dómstóls í því augnamiði að rétta yfir einstaklingi sem grunaður var um glæpi gegn mannkyninu er stofnun ad hoc dómstólsins sem settur var á laggirnar árið 1474 að tilstuðlan Karls, hertoga af Burgundy, til að rétta yfir og refsa Peter von Hag- enbach fyrir morð, nauðganir, meinsæri og aðra glæpi „violating the laws of God and man“.5 Á nýliðinni öld náðu hugmyndir um stofnun alþjóðlegs sakamáladómstóls að minnsta kosti allt aftur til undirritunar Versalasamningsins frá 28. júní 1919. I ákvæði 229. gr. samningsins var gert ráð fyrir stofnun ad hoc alþjóðadómstóls sem hefði það hlutverk að saksækja og dæma í málum þýskra stríðsglæpa- manna. Ekkert varð hins vegar af stofnun hans. í kjölfarið var oft og tíðum rætt um að stofna slíkan dómstól á vettvangi Þjóðabandalagsins (League of 3 Ég hef á öðrum vettvangi fjallað almennt um helstu ágreiningsmál við gerð samþykktarinnar, sjá hér Róbert R. Spanó: „Alheimsréttlæti og mannleg reisn - Hugleiðingar um stofnun varanlegs al- þjóðlegs sakamáladómstóls". Morgunblaðið 17. júní 1998. 4 Umfjöllunin í kafla 2 í þessari ritgerð er að meginstefnu til tekin upp úr frumvarpi til laga um framkvæmd Rómarsamþykktar um Alþjóðlega sakamáladómstólinn (bls. 3-5) sem lagt var fram á 126. löggjafarþingi 2000-2001 (þingskjal nr. 641, óbirt) en mér var falið af refsiréttamefnd dóms- og kirkjumálaráðuneytisins að semja drög að frumvarpinu. 5 Georg Schwarzenberger: Intemational Law as Applied by Courts and Tribunals. II. bindi. Stevens & Sons, London (1968), bls. 462-466; Bassiouni: Intemational Criminal Law. New York 1986/1987-111, bls. 3-4; ELSA (European Law Student’s Association): Handbook on the Intemational Criminal Court. 1997, bls. 1. 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.