Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 17

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 17
rfki sé heimilt að blanda sér í hemaðarátök eða innanríkismál annars ríkis. Ljóst er að með þessum fyrirmælum hafa aðildarríkin leitast við að gæta þeirrar meg- inreglu þjóðaréttar, sem fram kemur í 7. mgr. 2. gr. sáttmála Sameinuðu þjóð- anna, að ríkjum sé óheimilt að skipta sér af innanríkismálum annarra ríkja með beinum eða óbeinum hætti (non-intervention in intemal affairs rule). Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn getur samkvæmt þessu, eins og nánar verður rakið hér síðar, aðeins krafist afhendingar sakbomings ef ríki það sem í hlut á, og hefur viðkomandi einstakling undir höndum, skortir vilja eða getu til að annast við- eigandi aðgerðir gegn honum. Til samanburðar má geta þess að fyrirkomulag Rómarsamþykktarinnar um samspil lögsögu aðildarríkja og Alþjóðlega sakamáladómstólsins, sem endur- speglast í meginreglunni um fyllingarlögsögu, er frábrugðið því sem byggt er á í samþykktum Alþjóðastríðsglæpadómstólsins í málefnum fyrrum Júgóslavíu.13 Verður þetta meðal annars ráðið af efnisákvæðum laga nr. 49/1994, um réttar- aðstoð íslenska ríkisins við alþjóðadómstólinn sem fjallar um stríðsglæpi í fyrr- um Júgóslavíu. Lögsaga Júgóslavíudómstólsins er þannig byggð á sjónarmið- um um að dómstóllinn hafi forgang til að saksækja og dæma í málum þeirra einstaklinga sem grunaðir eru um að hafa framið glæpi gegn alþjóðlegum mannúðarlögum á landssvæði fyrrum Júgóslavíu frá árinu 1991, sbr. 2. mgr. 9. gr. samþykktanna fyrir þann dómstól.14 Almennt hefur verið gengið út frá því að alþjóðlegur dómstóll sem settur yrði á laggirnar til þess að dæma í málum er varða glæpi gegn mannkyninu hefði forgangslögsögu á borð við þá sem Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur.15 I úrskurði áfrýjunardeildar dómstólsins í máli saksóknarans g. Dusko Tadic, sem upp var kveðinn 2. október 1995, er komist svo að orði um þetta atriði:16 Indeed, when an intemational tribunal such as the present one is created, it must be endowed with primacy over national courts. Otherwise, human nature being what it is, there would be a perennial danger of international crimes being characterised as “ordinary crimes” (Statute of the Intemational Tribunal, art. 10, para 2(a)), or pro- 13 John F. Murphy: „The Quivering Gulliver: U.S. Views on a Permanent Intemational Criminal Court“. The Intemational Lawyer, Vol. 34. NO. 1, 2000, bls. 57. Sjá hér einnig greinargóða um- fjöllun hjá Flaviu Lattanzi: „The Intemational Criminal Court; Comments on the Draft Statute". Flavia Lattanzi (ritstj.) Editoriale Scientifica, Universitá Degli Studi di Teramo (1998), bls. 2-6. 14 Enda þótt ákveðið hafi verið að stofna Alþjóðastríðsglæpadómstólinn í málefnum fyrrum Júgó- slavíu með ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna árið 1993 vom dómstólar í einstökum ríkj- um einnig hvattir til þess að beita lögsögu sinni ef tækifæri gæfist til. Aðalritari Sameinuðu þjóð- anna sagði meðal annars svo um þetta: „it was not the intention of the Security Council to preclude or prevent the exercise of jurisdiction by national courts with respect to such acts. Indeed national courts should be encouraged to exercise their jurisdiction in accordance with their relevant nation- al laws and procedure". Report of the Secretary-General, UN Doc. S/25704, 3. maí 1993, 64. mgr. 15 Sjá hér nánar Kristina Miskowiak: sama rit, bls. 40-43. 16 The Prosecutor g. Dusko Tadic (2. nóvember 1995), bls. 32. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.