Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 55

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 55
unum um fræðilegan hæfnisgrunn umsækjenda, sem þegar hefur verið gerð grein fyrir. Aðalatriðið er vitaskuld, að hinn hæfasti fáanlegi maður verði ráð- inn í hlutaðeigandi starf hverju sinni. Um það ættu allir að geta verið sammála. 6. SKILYRÐI UM DOKTORSPRÓF EÐA JAFNGILDI ÞESS Rétt er, að mínu mati, að héðan í frá verði þeirri meginstefnu fylgt, að ekki verði aðrir ráðnir í störf dósenta eða prófessora við lagadeild en þeir menn, sem hafa að baki doktorsgráðu í lögfræði (en doktorsritgerðir þeirra koma engu að síður til venjubundins mats dómnefndar hverju sinni).6 Þó verður einnig að vera full heimild til að meta annars konar fræðistörf umsækjenda sem jafngild dokt- orsgráðu, þegar sérstaklega stendur á, en annars konar störf en fræðastörf geta hins vegar aldrei orðið jafngild doktorsprófi. Þetta verður einnig að hafa hug- fast, þegar framgangsreglum er beitt. Þessi regla gildir nú almennt, því næst án undantekninga, hvarvetna í hinum akademíska heimi eins og kunnugt er. Ekki er óvarlegt að spá því, að á komandi árum muni þessari kröfu um dokt- orspróf eða fullkomið jafngildi þess einnig verða beitt um nýráðningar lektora við deildina, eins og nú er t.d. löngu orðið í lagadeildum háskólanna í Dan- mörku og Noregi og í fjölmörgum öðrum hámenningarlöndum, sem við höfum mikil samskipti við.Vafalaust er einnig rétt að huga að hæfniskröfum aðjúnkta við lagadeild - jafnframt því sem staða þeirra verði styrkt á ýmsan hátt - og sýnist ekki óeðlilegt að í framtíðinni verði gerð krafa um að þeir hafi a.m.k. tek- ið meistarapróf í lögum við viðurkenndan háskóla. 7. SÉRFRÆÐIKUNNÁTTA Á ÁKVEÐNUM SVIÐUM LÖGFRÆÐINNAR Álitamál er vissulega, hvort rétt sé, að við ráðningar í störf við lagadeild séu gerðar ríkari kröfur en nú er um það, hvort hlutaðeigandi umsækjendur hafi með sannanlegum eða formlegum hætti öðlast sérfræðikunnáttu nákvæmlega á því fræðasviði, sem þeim er einkum ætlað að starfa á. Hins vegar er vitað, að þetta er reglan í flestum eða lrklega þó fremur öllum öðrum deildum Háskóla Islands. Ég tel þó, að vandlega athuguðu máli, að vart sé ástæða til, nú að sinni, að breyta um of frá núverandi framkvæmd þetta varðandi, enda þótt líklegt sé hins vegar að þessi regla verði tekin upp hér, eins og annars staðar, einhvern tíma á komandi árum. 8. AÐ HORFA FRAM Á VIÐ EN EKKI TIL BAKA Að mínu mati ætti alls ekki, frá þessari stundu, að horfa til fyrri framkvæmd- ar um ráðningu lagakennara þegar mörkuð skal stefna um nýráðningar, sem hafi mið af því sem hér hefur komið fram. Vegferð okkar lagadeildarmanna inn í framtíðina má líkja við ökuferð, þar sem ekki dugar að sá, sem er við stjómvöl- 6 Allnokkur hópur ungra lögfræðinga leggur nú stund á doktorsnám í lögum við virta erlenda háskóla. 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.