Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 56

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 56
inn á hverjum tíma, horfi einkum út um afturrúðu farartækisins heldur ber hon- um að horfa fram á veginn.7 Annað aksturslag getur ekki leitt til famaðar. Ein- blíning á fyrri vinnubrögð við ráðningar einstakra manna á ýmsum tímum, í stað þess að horfa til almennra viðmiða innan deilda háskólans og eðlilegrar kröfu tímans, leiðir okkur einnig fljótt í ógöngur. Vinnubrögð við nýráðningar, sem hefðu mið af úreltri stefnu (eða öllu heldur stefnuleysi) í þessu efni, myndu að vísu ekki leiða til lóðbeins hmns deildarinnar heldur hægfara hnignunar og einangmnar hennar frá hinu akademíska samfélagi - bæði hérlendis og á fjöl- þjóðlega vísu.8 9. LAGADEILD OG „ATVINNULÍFIГ Oft er rætt - og stundum af nokkrum fjálgleik - um „tengsl háskóla og at- vinnulífs" eða „þjónustuhlutverk háskóla við atvinnulífið“ o.þ.h. Oft er það tal illa skilgreint og iðulega fremur marklítið og innihaldssnautt þegar vel er skoð- að, stundum lítið annað en slagorð og upphrópanir. Miða ég þar við langa reynslu mína af málskrafi sumra manna um þau efni við ýmis tækifæri, fyrr og síðar. Akveðnar hættur leynast í þjónustu akademískrar stofnunar, sem hefur ríkar hlutleysisskyldur í fræðunum, við einstök fyrirtæki í atvinnulífi eða til- tekna hagsmunahópa, enda þótt náin samvinna háskólans og margvíslegra fyr- irtækja og stofnana geti verið réttlætanleg og sé stundum nauðsynleg. Getur þá stundum orðið stutt á milli þjónustu og þjónkunar. Er sá samskiptastígur sann- arlega vandrataður. Oft gleymist að höfuðskylda Háskóla Islands, sem og ann- arra sambærilegra rannsóknarháskóla, er við samfélagið allt (og þá um leið sjálfkrafa við „atvinnulífið“ svokallaða). Þá skyldu rækir háskólinn best með því að vera trúr fræðunum, á grundvelli vel skilgreindra stefnumiða, og sýna ítr- ustu varkárni um skyndikynni við hagsmunaaðila, sem oft heimta skammtíma- lausnir er gefi skjótan arð. Háskóli Islands á að vera þjóðleg menningarstofnun, sem fullnægir alþjóð- legum gæðakröfum og hefur rík tengsl við hið fjölþjóðlega háskólasamfélag án þess að glata sérstöðu sinni. Höfuðskylda háskólans sem rannsóknarháskóla er vitanlega sú að halda uppi öflugum og sjálfstæðum rannsóknum og jafnframt kennslu, sem byggir m.a. á grunni þeirra rannsókna. Þannig þjónar hann einnig samfélaginu best. Ekki má heldur gleyma gildi fræðastarfs „fræðanna vegna“, þannig að ekki er rétt að ein- blína á svokallaðar „hagnýtar greinar“ einvörðungu. Allar alvöru rannsóknir, á hvaða fræðasviði sem er, eru „hagnýtar“, enda þótt fjárhagslegur ávinningur af 7 Þegar hér er talað um „stjómanda ökutækis" er að sjálfsögðu átt við hvem þann, sem á hlut að ráningu starfsmannsins, þ.e. háskólarektor og dómnefndarmenn og jafnframt hvem einstakan kennara deildarinnar, en allir fastir kennarar eiga atkvæðisrétt á deildarfundum og þar með ákvörðunarrétt um stefnuna! 8 Minnumst þess, að fyrri ráðningar prófessora og dósenta við lagadeild fóru fram áður en núverandi viðmiðunarkerfi um hæfnisstig háskólakennara tók gildi, þannig að nú eru aðstæður aðrar og forsendur breyttar og því meira en sjálfsagt að taka upp ný vinnubrögð, sem byggist á fyrirliggjandi viðmiðunum. 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.