Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 23

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Blaðsíða 23
Ef stofnað var eða stofnað er til réttarhaldanna eða ákvörðun hefur verið tek- in innanlands um að firra viðkomandi mann refsiábyrgð á glæpum sem falla undir lögsögu dómstólsins, sbr. 5. gr. samþykktarinnar, getur dómstóllinn litið svo á að skort hafi vilja af hálfu ríkis í merkingu upphafsmálsl. 2. mgr. 17. gr., sbr. a-lið sömu málsgreinar. Sem dæmi um tilvik þar sem grunsemdir gætu vaknað um að í raun skorti nlci vilja til aðgerða er þegar ríkjandi valdhafar hafa staðið að glæpum sem falla undir lögsögu dómstólsins. Rannsókn og saksókn mála hjá yfirvöldum ríkis þar sem slíkir valdhafar eru ennþá ráðandi afl í stjórn landsins yrði því væntanlega skoðuð með mjög gagnrýnum augum hjá dóm- stólnum. I b-lið 2. mgr. 17. gr. er í öðru lagi gert ráð fyrir því að dómstóllinn geti lagt til grundvallar að skortur hafi verið á vilja ríkis í framangreindri merkingu ef óhæfilegar tafir hafa orðið á meðferð málsins sem miðað við aðstæður samrýmast ekki þeim ásetningi að leiða viðkomandi mann fyrir rétt. Leggja verður hér áherslu á að enda þótt talið yrði að tímalengd málsmeðferðar í ríki teldist „óhæfileg“ í merkingu ákvæðisins, sbr. til hliðsjónar efnisákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, er vafasamt að fallast á að sú niðurstaða ein og sér myndi leiða til þess að talið yrði nægjanlega leitt í ljós að ríki hefði skort ásetning til að leiða viðkomandi mann fyrir rétt. í ljósi meg- inreglunnar um fyllingarlögsögu sem Rómarsamþykktin er byggð á og endur- speglar hið þjóðréttarlega valdajafnvægi á milli Alþjóðlega sakamáladómstóls- ins og yfirvalda í einstökum ríkjum verður að ætla að fleira þurfi að koma til en það eitt að óhæfilegar tafir hafi orðið á meðferð málsins. I ljósi þessa verður að gera ráð fyrir að önnur ytri atvik verði lögð til grundvallar í þessu efni, ef þeim er á annað borð til að dreifa, og niðurstaða fengin samkvæmt almennum og hlutlægum mælikvarða. Þessar athugasemdir eiga einnig við um c-lið 2. mgr. 17. gr. að breyttu breytanda. 3.3.3.3 Skortur á getu ríkis Um það hvort skortur hafi verið á getu ríkis til aðgerða gerir 3. mgr. 17. gr.28 Rómarsamþykktarinnar ráð fyrir tvíþættu en samtvinnuðu mati dómstólsins.29 Ber honum í fyrsta lagi að meta hvort réttarkerfi viðkomandi ríkis er „með öllu eða að verulegu leyti óstarfhæft“. Komist dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að svo sé tekur hann til skoðunar hvort aðstæður séu með þeim hætti að ríki geti sem, miðað við aðstæður, samrýmist ekki þeim ásetningi að leiða viðkomandi mann fyrir rétt; c) réttarhöldin fóru eða fara ekki fram á óháðan eða hlutlausan hátt og fóru eða fara fram með þeim hætti, sem miðað við aðstæður, samrýmist ekki þeim ásetningi að leiða viðkomandi mann fyrir rétt“. 28 Ákvæði 3. mgr. 17. gr. Rómarsamþykktarinnar er svohljóðandi í fslenskri þýðingu: „Til þess að ákvarða hvort um er að ræða skort á getu í tilteknu máli skal dómstóllinn meta hvort ríkið geti ekki, vegna þess að réttarkerfi þess er með öllu eða að verulegu leyti óstarfhæft, tekið ákærða höndum eða aflað nauðsynlegra sönnunargagna og vitnisburðar eða sé á annan hátt ófært um að rétta í mál- inu“. 29 Sjá hér nánar John T. Holmes, sama rit, bls. 49. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.