Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Page 29
yggisráðsins,37 sem byggðar eru á heimildum þess samkvæmt sáttmála Samein-
uðu þjóðanna, sé þó ekki útilokað að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn muni
hugsanlega telja sig bæran undir ákveðnum kringumstæðum til þess að endur-
skoða grundvöllinn fyrir beiðni öryggisráðsins um frestun rannsóknar eða sak-
sóknar sem lögð er fram samkvæmt 16. gr.38
5. LOKAORÐ
Ég hef í þessari grein leitast við að gera nokkra grein fyrir reglum Rómar-
samþykktarinnar um Alþjóðlega sakamáladómstólinn sem lúta að lögsöguvaldi
dómstólsins. Af þeirri umfjöllun má að mínu áliti ráða að efnisákvæði sam-
þykktarinnar um það efni fela í sér pólitíska málamiðlun milli ólíkra sjónarmiða
og hagsmuna á alþjóðlegum vettvangi. Það er því harla örðugt að slá nokkru
föstu um það hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir dómstólinn og áhrif hans á
þróun og framtíð alþjóðlegs refsiréttar. Þó er ljóst að samþykkt mikils meiri-
hluta samningsríkja á rrkjaráðstefnunni í Róm 17. júlí 1998 um að stofna Al-
þjóðlega sakamáladómstólinn gaf til kynna að mikill vilji var fyrir hendi hjá
ríkjum heims að draga þá sem fremja glæpi gegn mannkyninu fyrir dóm og
refsa þeim fyrir gjörðir sínar.39
HEIMILDASKRÁ:
David S. Bloch & Elon Weinstein: „Velvet Glove and Iron Fist: A New Paradigm for
the Permanent Intemational War Crimes Court". Hastings International & Com-
parative Law Review. 1. hefti, 22. útg.
David Scheffer: International Criminal Court: The Challenge of Jurisdiction. U.S.
Department of State, Address at the Annual Meeting of the American Society of
Intemational Law, Washington DC, 26. mars 1999.
D. Eric Felten (ritstj.): A Shining City: The Legacy of Ronald Reagan. 1998.
Elisabeth Wilmhurzt: „Jurisdiction of the Court“. The International Criminal Court;
The Making of the Rome Statute, Issues, Negotiations, Results. Roy S. Lee
(ritstj.) Kluwer Law Intemational, 1999.
ELSA (European Law Student’s Association): Handbook on the International Crim-
inal Court. 1997.
37 Sjá hér einkum dóm áfrýjunardeildar dómstólsins 2. október 1995 í máli saksóknarans g. Du-
sko Tadic.
38 Geoffrey Robertson: Crimes Against Humanity; The Struggle For Global Justice. Penguin
Books, London (2000), bls. 348-349.
39 Þess skal getið að samkvæmt 1. mgr. 126. gr. Rómarsamþykktarinnar skal hún öðlast gildi fyrsta
dag næsta mánaðar eftir að liðnir eru 60 dagar frá því að 60. skjalið um fullgildingu, staðfestingu,
samþykki eða aðild var afhent aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til vörslu. I framsögu-
ræðu dóms- og kirkjumálaráðherra, er hún mælti á Alþingi fyrir frumvarpi til laga um framkvæmd
Rómarsamþykktar unt Alþjóðlega sakamáladómstólinn, kemur fram að 13. febrúar 2001 höfðu 28
ríki fullgilt samþykktina en 139 undirritað hana, sjá hér neðanmgr. 4.
23