Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Qupperneq 44

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Qupperneq 44
bundinn dóm sýndu lægsta tíðni ítrekunar. Fyrir utan að sýna mun á ítrekunar- tíðni milli ólrkra tegunda refsinga sýndi greining að ítrekunartíðni hefur til- hneigingu til að vera hæst meðal yngri einstaklinga, karla, þeirra sem hafa fyrri brotasögu að baki og þeirra sem dæmdir eru fyrir fjármunabrot. Vísbendingar fundust um að ítrekunartíðni sé hærri meðal þeirra sem hlutu lengri dóma en þessi niðurstaða takmarkast þó við þá sem luku samfélagsþjónustu og þá sem fengu skilorðsbundinn dóm. Að lokum sýna niðurstöðurnar að tíðni ítrekunar og nýrrar fangelsunar hefur ekki breyst verulega á rannsóknartímabilinu en pró- sentuhlutfall dæmdra brotamanna sem lögregla hefur afskipti af á ný hefur auk- ist verulega. Rannsóknin tekur á fjölmörgum þáttum og leiðir í ljós nokkur athyglisverð mynstur. Þeir þættir sem skoðaðir voru gefa einnig næg tækifæri til frekari rannsókna á ítrekunartíðni á Islandi. Hér hefur aðeins verið tæpt á þeim fjöl- mörgu spumingum sem hægt er að leita svara við en með frekari gagnasöfnun í framtíðinni og greiningu á þeim er hægt að gefa enn rækilegri mynd. Hægt væri að prófa ýmsa aðra þætti með þessum upplýsingum. Þar má nefna umfang og forspárgildi reynslulausnar, nákvæmari greiningu á ítrekun eftir tegund nýja brotsins og að hvaða marki forspárgildi ítrekunar hefur samverkandi áhrif inn- byrðis sem síðan hefur áhrif á umfang ítrekunar. Varðandi seinni þáttinn er hægt að skoða nokkur atriði, m.a. hvort tilteknar tegundir refsinga dragi úr ítrekun til- tekinna brotamanna (t.d. yngri brotamanna eða þeirra sem eiga stuttan brotafer- il að baki) eða hvort áhrif lengdar dóms á ítrekun sé mismunandi eftir tegund- um brota. Hægt væri að rannsaka fleiri mikilvægar spurningar með því að bæta inn upplýsingum í gagnasafnið. Þó að upplýsingamar í rannsókninni séu afar um- fangsmiklar sýna þær ekki alla þá þætti sem fyrri rannsóknir á íslandi hafa tengt við ítrekanir og hugsanlega geyma þær ekki alla þá þætti sem gætu vakið áhuga opinberra stefnumótenda í þessum málaflokki. Óskandi væri að rannsóknir í framtíðinni tækju einnig mið af fleiri mælikvörðum ítrekunar eins og upplýs- ingum um atvinnuþátttöku brotamanna bæði fyrir og eftir að afplánun lauk, vímuefnanotkun þeirra auk fjölskylduhaga. Ekki síður væri athyglisvert að byggja rannsóknir á frásögn brotamannanna sjálfra til að varpa ljósi beint á reynslu þeirra. Einnig væri athyglisvert að meta hvort ítrekunartíðni sé breyti- leg eftir vistunarstað fanga, þ.e. eftir þeim fimm fangelsum sem starfrækt eru á Islandi, eða eftir eðli þeirrar samfélagsþjónustu sem innt er af hendi. Ekki var hægt að mæla hvort ítrekunartíðni er breytileg eftir tegundum refsinga en hægt er að víkka þessa mælingu umtalsvert. Sem dæmi má nefna að athyglisvert væri að mæla hvort ítrekunartíðni þeirra sem hljóta sektardóma án þess að hljóta refsingu af öðru tagi sé önnur en þeirra sem hljóta aðrar tegundir refsinga. Að auki myndu fyllri upplýsingar um inntak refsingarinnar sjálfrar hugsanlega gefa skýrari mynd af virkni ólíkra tegunda af refsingum. Það væri t.d. fróðlegt að meta áhrif ólíkra úrræða innan fangelsanna sjálfra svo og úrræða utan fangelsis- veggjanna eins og áhrif vímuefnameðferðar og vistunar á áfangaheimili Vemd- 38
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.