Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Side 91

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Side 91
sinn. Verður talið vafasamt að notkun eftirlitsmyndavéla einungis í þeim til- gangi að tryggja að starfsmenn vinni störf sín vel og af kappi geti réttlætt vöktun. Fram kemur í riti Peter Blume og Jens Kristiansen, Databeskyttelse pá arbejdsmarkedet, að starfsmaður eigi rétt á því að njóta ákveðinna grund- vallarréttinda, s.s. að klæðast og matast í friði og því myndu eftirlitsmyndavélar í búningsklefum, á salemum eða á kaffistofum ekki vera heimilar þar. Hið sama gildi um staðsetningu eftirlitsmyndavéla inni á einkaskrifstofum eða væri myndavél beint að einu ákveðnu skrifborði þótt skrifborðið sjálft sé staðsett í opnu rými.14 Hér er þó rétt að benda á að í úrskurði stjómar Persónuvemdar frá 8. ágúst 2003 í máli Búnaðarbanka íslands var talið heimilt að beina eftirlits- myndavélum að skrifborðum á lokuðum skrifstofum einstakra starfsmanna bankans eftir að formlegum vinnudegi lauk. Um var að ræða skrifborð fram- kvæmdastjóra og bankastjóra bankans en þessum aðilum hafði verið gert kunnugt um vöktunina. Af því sem að framan sagði verður að telja að fyrir hendi þurfi að vera sérstakar ástæður til þess að viðhafa rafrænt eftirlit og að eftirlitið verður að vera þannig að ekki sé á ónauðsynlegan hátt vegið að virð- ingu starfsmanns. Hér að framan hefur verið vísað til leyfis Persónuverndar frá 21. desember 2001 til Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. um vinnslu persónuupp- lýsinga sem til urðu í eftirlitsmyndavélum fyrirtækisins. Leyfið átti sér stoð í þágildandi 2. mgr. 9. gr. pvl., nú 3. mgr. 9. gr., en þar segir að Persónuvemd geti heimilað vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga í öðrum tilvikum en greini í 1. mgr. telji hún brýna almannahagsmuni mæla með því. Einnig var í álitinu vísað til skilyrða 4. gr. um „sérstaka þörf ‘ vegna „eðlis“ þeirrar háttsemi sem fram fór. Mál þetta varðaði eftirlitsmyndavélar sem staðsettar voru við út- og inngöngudyr, á útisvæði og við framleiðslulínu fyrirtækisins þar sem áfengi fór um. í rökstuðningi sínum tók Persónuvemd fram að ljóst væri að mjög strangar kröfur giltu um framleiðslu áfengis, sbr. áfengislög og lög um gjald af áfengi. A handhafa leyfis fyrir framleiðslu áfengis hvíldi sú skylda að tryggja að framleiðslan væri í samræmi við lög og það gæti varðað handhafa leyfis missi þess ef upplýst yrði um ítrekaða rýrnun eða brot á lögum eða þeim skilyrðum sem starfseminni voru sett. Þannig taldi Persónuvemd að rafrænnar vöktunar á áðurgreindum stöðum innan ölgerðarinnar gæti verið þörf vegna eðlis þeirrar starfsemi sem þar færi fram, sbr. 2. mgr. 8. gr. laga (nú 2. tl. 1. mgr. 4. gr.) pvl. Hvað heimildarákvæði 2. mgr. 9. gr. (núverandi 3. mgr.) varðaði sagði Persónuvernd: „að virtu öllu því sem að framan er rakið og í ljósi almannaöryggis og hagsmuna ríkisins af nauðsynlegri refsivörslu er það mat Persónuvemdar að tiltekin vinnsla Ölgerðarinnar á myndefni sem til verður í tengslum við framkvæmd rafrænnar vöktunar, uppfylli skilyrði 2. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000 um brýna almannahagsmuni". 14 Peter Blume og Jens Kristiansen: Databeskyttelse pá arbejdsmarkedet. Kaupmannahöfn 2002, bls. 107-108. 275
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.