Ægir - 01.03.1996, Blaðsíða 7
Stærsta fiskiskip sem
skráð hefur verið á íslandi
Risatogarinn Heinaste var nýlega settur inn
á íslenska skipaskrá og heitir nú Heinaste HF 1
og er meö skipaskrárnúmerið 2263. Eigandi
skipsins er skráð Eyvík ehf. en það er í eigu
Sjólaskipa hf. í Hafnarfiröi sem hafa gert skip-
ib út síðan í mars 1995. Markmiðiö með því
Heinaste HF 1 er stcersta fiskiskip sem nokkru
sinni hefur verið skráð á íslandi.
að skrá skipiö á íslandi var ab gera því kleift
að frysta loönu í Hafnarfjarðarhöfn á loönu-
vertíðinni en aöeins skip skráð á íslandi mega
vinna fiskafurðir innan lögsögunnar.
Heinaste er stærsta fiskiskip sem hefur ver-
ið skráð á íslandi og munar talsvert miklu á
því og næsta. Heinaste er smíðað í Stralsund í
Austur-Þýskalandi árið 1990. Það er 120,4
metrar á lengd en 19 metrar á breidd. Dýpt frá
togþilfari er 12,27 metrar en þrjú þilför eru í
skipinu. Heinaste er skráð 7.765 BT eða 4.120
brl. Það er knúb af tveimur aðalvélum af gerð-
inni SKL sem hvor er 3.600 hestöfl. Ljósavélar
eru tvær, samtals 2400 hestöfl.
Til samanburðar má geta þess ab Guðbjörg
ÍS sem var fyrir eitt stærsta fiskiskip á skrá er
1.225 brl. og 49,86 m á lengd.
Heinaste hefur einkum verið á úthafskarfa-
veiðum á Reykjaneshrygg en það getur fryst
um 60 tonn af fiski á sólarhring og í lestinni
er pláss fyrir 1200 til 1400 tonn af frystum af-
urðum. Fiskmjölsverksmiðja um borb getur
brætt mjöl úr 50 tonnum af úrgangi á sólar-
hring.
Um borð í Heinaste eru íbúðir fyrir 116
manna áhöfn.
F I S K U R
ANAÐARINS
'
Fiskur mánaðarins er hrognkelsi eba Cydopterus lumpus, af hrognkelsa-
ætt, en karldýrið, sem er rauðmagi, er í hugum margra sannur vorboði.
Kvendýrið er grásleppa og er hún oftast 35-55 cm en getur orbib 60 cm.
Hún er mun stærri en karlinn en
stærstu rauðmagar eru 40
cm. Heimkynni hrogn-
kelsis eru í Barentshafi,
Hvítahafi og Norður-
Atlantshafi suður til
Portúgals. Hrognkelsið er
allt í kringum ísland en það
er göngufiskur sem heldur sig
Grásleppa " úti á reginhafi en hrygnir á grunn-
miðum á vorin. Hrognkelsin sækja á sömu
slóðir og þau ólust upp á og hrygna á
0-40 metra dýpi. Hængurinn gætir
hrognanna sem eru 80-150 þúsund,
fremur stór eða 2,5 mm í þvermál
og eru eftirsótt lostæti.
Rauðmaginn er veiddur til átu
en úr grásleppunni eru hrognin hirt
og eru verðmæt útflutningsvara. Há-
karlar og selir éta mikið af hrognkelsum
og þau eru aðalfæða búrhvala.
Heimild: íslenskir fiskar eftir Gunnar Jónsson.
RÆKJUSTRÍÐ í MEXÍKÓ
Rauðmagi
Bandaríkjamenn hafa lýst því yfir að þeir ætii að setja innflutningsbann
á rækju frá Mexíkó. Astæðan fyrir fyrirhuguðu banni er sú að mexíkósk-
ir útgerðarmenn geta ekki sýnt fram á að veiðar þeirra á rækju stefni
ekki sæskjaldbökum í hættu en sæskjaldbökur eru taldar í útrýmingar-
hættu og umhverfisverndarsamtök í Bandaríkjunum telja rækjuveiðar
Mexíkana stærstu ógnina við þær. Mexíkóskir útgerðarmenn eru æfir
vegna þessa máls og telja fyrirhugað bann afar ósanngjarnt og byggt á
hæpnum vísindalegum grunni. Verði ekki hægt að sýna fram á að veið-
arnar séu skjaldbökunum óskaðlegar verður lokað fyrir innflutninginn í
maí nk.
Á síðasta ári veiddu Mexíkómenn 65 þúsund tonn af rækju og var út-
flutningsverðmæti aflans um 12 milljarðar íslenskra króna en 80% afl-
ans voru flutt út til Bandaríkjanna svo augljóslega eru hér miklir hags-
munir í húfi fyrir Mexíkómenn.
(Fiskaren. febrúar 1996)
ÆGIR 7