Ægir - 01.03.1996, Blaðsíða 10
VIÐ NÁNARI ATHUGUN
Sjórinn hlýrri en í fyrra
Árlegur rannsóknaleiðangur Bjarna Sæmundssonar til mælinga á sjávarhita og
seltu umhverfis landið var farinn í 27. sinn I febrúar sl.
Sjávarhiti úti fyrir Suður- og Vesturlandi var 5-7 C° sem er í góðu meðallagi, en
seltan var fremur lág eins og undanfarin ár. Áhrifa hlýja sjávarins gætti einnig fýrir
Norðurlandi allt frá Kögri að Langanesi með hitastig frá 3 til 5°C og seltu frá 34,7 til
34,8. Þetta er mikil breyting frá því ástandi sem ríkti í hafinu veturinn og fram á vor
1995 þegar ískaldur svalsjór og pólsjór ríkti á norður- og austurmiðum í meira mæli en
áður hafði mælst. Breyting til batnaðar varð í ágúst 1995 og áfram í nóvember 1995.
Fyrir Austurlandi var hitastig í vetur einnig hátt eða 2-3°C. I Austur-lslandsstraumi
djúpt norður og austur af landinu var hitastig í vetur einnig tiltölulega hátt eða 0-2°C
en seltan aftur fremur lág eða minni en 34,7 en það bendir til þess að loftkuldi geti
enn kælt sjóinn og erástandið reyndarvið mörk þess að frosið geti í miklum hörkum
þó mjög ósennilegt sé að hafíss sé að vænta af þeim sökum.
Skilin milli kalda sjávarins og þess hlýja við Suðausturland voru að vanda um Lóns-
bugt og hitastig grunnt við Suðurland á hefðbundinni loðnuslóð var fremur hátt eða
um 7°C. Djúpt út af Austurlandi, á Rauða torginu, gætti áhrifa hlýsjávar með hitastigi
allt að 5°C og seltu 35,0. Hið tiltölulega háa hitastig í kalda sjónum í Austur-íslands-
straumi veldur því að skilin milli hlýju og kalda sjávarins í Austurdjúpi eru veikari en
ella.
Þannig gefa niðurstöður til kynna almennt gott árferði í sjónum allt í kringum land-
ið og gefa vonir um gott framhald en næst verður ástandið kannað í vorleiðangri í
maí og júní.
í leiðöngrum sem þessum er ekki aðeins mældur hiti og selta og í þessum var
hugað að kolefnismælingum á ýmsum stöðum, áturannsóknum í Austurdjúpi, sýna-
töku á seti og sjó vegna athugana á geislavirkni í samvinnu við Geislavamir ríkisins.
Tíu rekduflum var varpað i sjó sunnan lands og vestan og mun verða fylgst með reki
þeirra um gervihnött. Alls er þá búið að kasta 40 duflum í sjóinn á einu ári.
Leiðangursstjóri á Bjarna Sæmundssyni var Svend-Aage Malmberg.
BLandssamband íslenskra út-
vegsmanna ályktar að þátt-
taka í veiðum á norsk-íslensku síld-
inni verði frjáls í sumar.
œLoðnuskipið Dagfari fær á sig
brotsjó við Reykjanes þar sem
skipið er á leið til Keflavíkur með
fullfermi í vonskuveðri. Miklar
skemmdir urðu um borð og einn
maður meiddist nokkuð. Varðskip
kom Dagfara til aðstoðar og fylgdi
honum til Keflavíkur.
ETogarinn Eyvindur Vopni
steytir á skeri við innsigling-
una til Vopnafjarðar. Skemmdir eru
í fyrstu taldar litlar en síöar kemur í
ljós að skipið verður frá veiðum í
tvær vikur.
ŒSigluberg í Grindavík selur
Guðmundi Runólfssyni í
Grundarfirði Hrímbak sem hefur
verið úreltur á móti nýju nótaskipi
sem kemur til Grindavíkur í vor.
Hrímbakur verður því gerður út til
veiða utan landhelgi.
Fyrirtækið Fiskbitar hf. í Bol-
ungarvík nær góðum árangri
í framleiðslu hundafóðurs úr fisk-
beinum og afskurði sem er seldur til
að minnsta kosti þriggja landa.
Garðar II frá Ólafsvík, sem er
142 tonna stálskip smíðað á
Akureyri 1974, hefur verið seldur
Axel Jónssyni á Hornafirði. Fimm
tonn af kola og tvö af síld fylgdu
með í kaupunum.
aSjöfn II NS hefur verið seld
frá Bakkafirði til Vestmanna-
eyja og kaupendur eru Elmar Guð-
mundsson og Ástþór Jónsson. 50
tonna kvóti fylgir með í kaupunum.
Sjöfn II er 63 tonna eikarbátur smíð-
uð í Danmörku 1956.
Hlutafé Borgeyjar hf. á
Hornafirði aukið um 60 millj-
ónir. Þetta er liður í aðgerðum til
þess að dreifa eignaraðild að félaginu
svo það fáist skráð á Verðbréfaþingi
íslands.
Risatogarinn Heinaste er sett-
ur á íslenska skipaskrá til
10 ÆGIR