Ægir - 01.03.1996, Side 15
um annaö kaffibrauð, s.s. kleinur, skonsur, skúffukökur
og vínarbrauð. Það er alltaf vinsælt og skiptir máli upp á
verðið."
Hvaö er það sem kokkurinn má ekki gera?
„Maöur verður að finna út hvað menn vilja og reyna
að foröast að hafa einhæft fæði. Þaö er alltaf fiskur í ann-
að málið og þeim yngri er ekki alltaf vel við það. En mað-
ur lærir fljótlega á áhöfnina og hvaö menn vilja og vilja
ekki."
En hvað gerir kokk vinsælan?
„Við reynum að sjá til þess að allir fái einhvern tímann
eitthvaö við sitt hæfi. Einu sinni í hverjum túr er pizza í
matinn t.d. og það er vinsælt hjá þeim yngri."
Það þarf 12 pizzur 18 tommu fyrir eina togaraáhöfn.
Kokkurinn finnur fljótt ef þreyta og leiði gerir vart við
sig í löngum túrum og hann getur þá reynt að koma á
móts við þaö. En þegar vel fiskast liggur vel á öllum og
líka kokknum og hann reynir þá að verðlauna menn fyr-
ir góða frammistöðu og láta ekki sitt eftir liggja.
Starfsmannafélag, sjoppa og sólbekkur
Um borð í Örfirisey er starfsmannafélag sem annast upp-
töku á sjónvarpsefni fyrir áhöfnina, tveir bókakassar eru
teknir annan hvern túr og félagið rekur ljósabekk og sjoppu
um borð. í sjoppunni fást gosdrykkir og sælgæti en enginn
afgreiðir heldur er bókhaldi upp i á vegg þar sem hver skrif-
ar sína úttekt og aldrei verður neinn misbrestur á. Starfs-
mannafélagið gengst fyrir árshátíðum og ýmsu félagslífi.
Finnst þér þú hafa séð breytingar á mataræði sjómanna
síðan þú fórst fyrst að vinna við þetta?
„Það eru svipaðar breytingar og hafa orðið á mataræði al-
mennt. Ég hef nú ekki mikið pasta í matinn samt. Mér
fannst ég finna gífurlegan mun þegar ég kom til Reykjavíkur
að því leyti að hér var hægt að fá allt sem manni datt í hug
ab kaupa í matinn en heima á Suðureyri var vöruúrvaliö oft
ansi fábreytt og það kom fyrir að við fengum ekki einu sinni
mjólk og urðum að fara með mjólkurduft í heilan túr."
Fyrir rúmum tveimur ámm var gerð könnun á heilsufari
togarasjómanna sem leiddi í ljós að mjög hátt hlutfall þeirra
hafði of lítið þol, of háa blóðfitu og fleira kom í ljós sem ekki
þótti nógu gott.
„Þetta var nýlega komið í ljós þegar ég kom um borð og
menn tóku þetta töluvert alvarlega fyrst í stað og þeir vom
að biðja um léttmjólk, magrari ost, hættu að borða egg og
ýmislegt svona og hinsegin en ég held nú að þetta sé allt far-
ið í sama farið aftur. Það þarf að minna menn á en ég set þá
ekki í megrunarkúr."
Um borð í Örfiriseynni gilda þær reglur fyrir alla að menn
eru þrjá túra um borð og einn í fríi.
„Þessar löngu útivistir eru það erfiðasta fyrir alla. í gamla
daga fannst manni langur túr sem náði 8-9 dögum en það
var barnaleikur." □
íjpSJÓDÆLUR
Með eða án
rafmótors eða
segulkúplingu
Grandagaröi 5, 101 Reykjavík, s: 562 2950, fax: 562 3760
<
RKS
GASSKYNJARAR
FYRIR FREON OG AMMONÍAK
SPARNAÐUR
UMHVERFISVÆNT
ÍSLENSKT HUGVIT
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
Gasskynjararnir eru til þess að
gera viðvart um leka í frysti-
og kælikerfum. Þeir eru gerðir
fyrir erfiðar aðstæður og henta
vel í t.d. frystihúsum og frysti-
togurum.
Þeir spara tíma,fé og fyrirhöfn.
RKS Skynjaratækni
Borgarflöt 27 - 550 Sauðárkrókur - Sími: 455 4552 - Fax: 455 4501
ÆGIR 1 5