Ægir - 01.03.1996, Qupperneq 16
Vertíðarbátar fóru
verst út úr kerfinu
segir Aðalsteinn Einarsson skipstjóri á
Hring GK 18
Aðalsteinn Einarsson skipstjóri og útgerðarmaður á Hring GK 18 var
að koma að bryggju í Þorlákshöfn úr netaróðri þegar Ægir hitti hann
að máli. í lestinni eru rúmlega 11 tonn af boltaþorski sem fengust í
10 netatrossur skammt undan Selvogsvita og verður nú ekið í fisk-
verkun sem útgerðin á og rekur í Hafnarfirði. Fiskurinn er sá besti í
salt sem völ er á, meðalþyngdin í síðasta róðri var rúm 10 kíló hver
fiskur slægður og tvö kör eru full af bústnum hrognaskálmum. Á Hring
voru menn einna fyrstir til að taka netin upp um helgar og þeir voru
fljótir að taka körin um borð þegar þau komu.
Aðalsteinn hefur verið til sjós í um
40 ár samtals, alltaf á bátum, aldrei á
togurum. Hann hefur setið við stjórn-
völinn á Hring í um 16 ár og telur hann
úrvalsskip. Aðalsteinn er ómyrkur í máli
um atvinnugreinina sem hann lifir og
hrærist í, sjávarútveginn.
Það er verið að ganga af okkur
dauðum
„Þetta er enginn kvóti sem þessir
vertíðarbátar hafa nú orðið. Það er al-
veg verið að ganga af þessum bátum
dauðum. Þetta rétt stendur í járnum
hjá okkur miðað við þann kvóta sem
við höfum," segir Aöalsteinn í samtali
við Ægi.
Hringur GK hefur samtals 390 tonna
kvóta mælt í þorskígildum. Hann skipt-
ist í tæp 170 tonn af þorski, 97 tonn af
ýsu, 17 tonn af ufsa og tæpt eitt tonn af
karfa og síðast en ekki síst 1.386 tonn af
síld. Hringur hefur ekki veitt síld í mörg
ár enda segir Aðalsteinn hann ekki
henta til þeirra veiða. Síðustu ár hefur
Hringur verið á netaveiðum allt árið
sem Aðalsteinn segir hagkvæmast en
áður var skipt yfir á línu hluta úr árinu
eins og þá tíðkaðist. Aðalsteinn segir
það ekki borga sig nema vera með
beitningavél og þá aðeins á tvöföldun-
artímanum.
Þetta þýðir það í framkvæmd að öll-
um síidarkvóta er t.d. skipt fyrir þorsk
og kvóti er tekinn á leigu. Fyrir rúmlega
1300 tonn af síld fékk Hringur GK rétt
90 tonn af þorski en Aðalsteinn segir
það hafa sveiflast nokkuð milli ára hve
mikinn þorsk hann fengi fyrir síldina.
„Við værum löngu farnir á hausinn
ef við værum ekki búnir að kaupa kvóta
fyrir 30 milljónir, þá væri þessi bátur
með 100 tonna þorskkvóta. Svo reynum
við að skammta okkur visst magn á
mánuði til þess að geta verið við þetta
nokkurn veginn allt árið en þegar neta-
vertíðinni lýkur þá verður bátnum lagt í
2-3 mánuði yfir sumarið."
Aðalsteinn segir að þegar bátar eins
og Hringur voru gerðir út fyrir tíma
kvótakerfisins hafi verið algengt að þeir
væru með 900-1000 tonn af þorski á
vetrarvertíðinni og 1800-2000 tonna
ársafla og þótti ekkert tiltökumál.
16 ÆGIR