Ægir - 01.03.1996, Side 19
Nú má ekki gera upp á lægra verði en
60 krónum. Er staðið við þau mörk?
„Ég held að menn standi ekkert endi-
lega við það. Ég heyri af 35-40 króna
verði og það eru í framkvæmd sérsamn-
ingar á hverjum bát. Þetta er ákaflega
erfitt mái í framkvæmd og allt skapast
þetta af því að þessir bátar eru í vandræð-
um og hafa ekki nóg að gera."
Heil kynslóð togaramanna
hendir fiski
Aðalsteinn er harla þungorður þegar
talið berst að vinnubrögðum togaranna
við veiðar.
„Það er að alast upp heil kynslóð af
togaramönnum sem þekkir ekki annað en
að henda fiski. Þeirra vinnuaðferðir komu
best í ljós í Smugunni þegar heilum skips-
förmum af smáfiski var rutt í sjóinn aftur.
Þetta gekk svo langt að þegar smáfiskur-
inn minnkaði í aflanum vildu sumir láta
henda frystum og pökkuðum fiski úr lest-
inni til að rýma fyrir betri fiski. Þetta hafa
togaramenn sjálfir staðfest eins og kom
fram á þingi Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins í haust."
En var þetta ekki undantekning þegar
menn misstu stjórn á sér í frjálsri veiði?
„Nei þetta var bara það sem þeir eru
vanir að gera. Þarna sáu bara Norðmenn-
irnir til þeirra og ég lái þeim ekki þó þeir
hafi orðið vitlausir.
Það er kominn upp heill iðnaður til
þess að nýta afskurðinn af frystitogurum
og framleiða úr honum alls konar hluti.
Ég heyri engan tala um iðnað kringum af-
skurð frá frystihúsi í landi. Ástæðan er sú
að það eru svo mikið af heilum flökum í
afskurðinum. Skemmdur fiskur og fiskur
sem passar ekki í flökunarvélarnar vegna
þess að hann er of stór eða of lítill fer í af-
skurðinn. Aldrei höfum við fengið að
draga smáfisk og skemmdan fisk frá kvót-
anum."
Aðalsteinn segir að skepnuskapur við-
gangist á öllum veiðum í einhverjum
mæli. Togarar henda fiski, krókabátar slá
smáfiskinn af krókunum og línubátar
einnig og það hefur verið hent fiski af
netabátum.
Hendir þú fiski Aðalsteinn?
„Nei. Ég hef ekki skap í mér til þess að
vera að því. Við eigum börn og við eigum
barnabörn og við megum ekki vera alveg
blindir og hugsa bara um daginn í dag og
stela frá börnunum okkar.
Ég held að þetta fari minnkandi á báta-
flotanum og þó einn og einn geri þetta þá
er það ekkert hjá því magni sem togararn-
ir henda."
Byrjaði 14 ára á sjó
Aðalsteinn byrjaði til sjós 1957 á Guð-
björgu HF á síld á reknetum, þegar hann
var 14 ára gamall, og var alltaf ákveðinn í
því að stunda sjóinn. Hann útskrifaðist úr
Stýrimannaskólanum 1964 og var árum
saman stýrimaður á bátum sem hétu Eld-
borg GK einn af öðrum og gerðir út frá
Hafnarfirði. Gunnar Hermannsson var
skipstjóri en Gunnar var þekktur aflamað-
ur, bróðir Sverris, Gísla Jóns, Þórðar og
Halldórs frá Svalbarða í Ögurnesi.
„Það var gott að vera með Gunnari.
Hann var ákaflega laginn fiskimaður og
það var aldrei neitt streð eða læti. Það
gekk allt svo slétt og fellt."
Um 1965 réðist Aðalsteinn á Guðrúnu
Þorkelsdóttur SU og var þar í tvö ár. Hann
var mikið á síldveiðum í upphafi ferils
síns og síðar lobnuveiðum. Helgi Einars-
son bróðir hans var skipstjóri á Guörúnu
og Aöalsteinn var stýrimaður hans. Sam-
an eiga þeir bræður Hring GK ásamt Ingi-
mundi Jónssjmi sem var skipstjóri á Hring
til 1980 þegar Aðalsteinn tók við.
Þremenningarnir keyptu sinn fyrsta bát
af Daníel Þorkelssyni á Siglufirbi en hann
bar einmitt nafnið Hringur og þab hefur
reynst þeim happasæit. Fyrsti Hringurinn
var smíðaður í Hollandi 1955 og skiltið
með nafni hans er enn framan á brúnni á
núverandi Hring.
Hringur GK 18 er smíðaður í Stálvík
1972. Hann hét upphaflega Þorlákur og
var smíðaöur fyrir Meitilinn í Þorláks-
höfn, síban hét hann Brimnes og var
gerbur út frá Rifi á Snæfellsnesi en þaðan
fór hann til Vopnafjarðar og hét þá Rita
NS og þaðan keyptu Aðalsteinn og félagar
hans bátinn. Hann hefur tvisvar sinnum
verið lengdur, byggt yfir hann, ný brú sett
á og Aðalsteinn segir að hann sé mjög
gott skip.
„Daníel Þorkelsson var skemmtilegur
maður. Þegar vib keyptum litla bátinn af
honum var hann uppi í Slippstöðinni á
VOKVABUNADUR
IVINNUVÉLAR
VÖKVAMÓTORAR
PVG 3AMSVARANDI
STJORNLOKAR OG
FJARSTYRINGAR
GÍRAR OG BREMSUR
GOTTVERD-GÓÐ ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260