Ægir - 01.03.1996, Qupperneq 32
Sjaldséðir
FISKAR
árið 1995
Stutti silfurfiskur er ný fisk-
tegund á Islandsmiðum. Hatm
veiddist í flotvörpu í maí, um 200
sjómílur SV af Reykjanesi. Þessi bar nafn
með rentu því hann var ekki nema 6 cm á lengd.
Gunnar Jónsson, Jakob Magnús-
son, Vilhelmína Vilhelmsdóttir
og Jónbjörn Pálsson
Árið 1995 veiddist fjöldi sjaid-
séðra fiska á Islandsmiðum. Þar
á meðal voru a.m.k. 12 tegundir
sem ekki hafa fundist áður innan
íslenskrar lögsögu. Fjórum þess-
ara tegunda er lýst í 10. tbl. Ægis
1995. Þegar farið var að gramsa í
gögnum fyrri ára greindust a.m.k.
tvær nýjar tegundir áður óþekkt-
ar á íslandsmiðum og ein undir-
tegund. Hér á eftir verður greint
frá þeim sjaldséðu fisktegundum
sem Hafrannsóknastofnunin hafði
veður af sl. ár.
Slímáll, Myxine ios
- Apríl, grálúðuslóð vestan Víkuráls,
1006-1098 m, 50 cm, botnvarpa.
- Júní, grálúðuslóð vestan Víkuráls, 52
cm.
Þessi tegund, sem er reyndar hvorki
fugl né fiskur og var óþekkt hér þar til
1973 og talin sjaldséö fram yfir 1990,
veiðist nú árlega.
Brandháfur, Hexanchus griseus
- Ágúst, Faxaflói (64°22'N, 22°54'V),
92-97 m.
Brandháfur fannst fyrst hér vib land
árið 1920 að því að talið er. Síðan þá
hafa a.m.k. sex bæst við. Þessir fiskar
hafa fundist frá Mýrabug vestur í Faxa-
flóa, en þar hafa tveir brandháfar veiðst,
sá fyrri í september 1990. Brandháfur er
m.a. auöþekktur á því ab hann er með
sex tálknaop en aörir háfiskar á íslands-
miðum eru með fimm.
Kambháfur, Pseudotriakis microdon
- Febrúar, Skerjadjúp (62°36'N,
24°38'V), 732-915 m, botnvarpa.
Kambháfur veiddist hér fyrst árib
1900. Alls munu 12 hafa fengist á ís-
landsmiðum á árunum 1900-1995. Þeir
hafa fundist frá Mýrabug og vestur fyrir
Reykjanes.
Maríuskata, Bathyraja spinicauda
- Mars, Þórsbanki (63°28'N, 11°41’V),
390-413 m,75 cm hængur, botn-
varpa.
- Júní, grálúðuslóð vestan Víkuráls, 51
cm.
Jensensskata, Raja (Amblyraja) jenseni
- Júlí, út af Þistilfjarðargrunni
(67°17'N, 14°56'V), 549 m.
Þessi skata er varðveitt á Náttúru-
fræðistofnun. A.m.k. ein jensensskata
hefur fundist áður á íslandsmiðum skv.
þýskri heimild.
Náskata, Raja (Leucoraja) fidlonica
- Mars, utanvert Háfadjúp, 915-1006
m, 2 stk. 44 cm hrygna og 72 cm
hængur, botnvarpa.
Bleikskata, Raja (Malacoraja) kreffti
- Mars, utanvert Háfadjúp, 915-1006
m, 3 stk. 43 og 49 cm hængar og 53
cm hrygna, botnvarpa.
Bleikskata veiddist fyrst á íslandsmið-
um árið 1992 en þá fékkst ein á
1095-1097 m dýpi djúpt undan Önd-
verðarnesi.
Bláskata, Raja (Rajella) bigelowi
- Júní, grálúðuslób vestan Víkuráls, 49
cm hængur, botnvarpa.
Þessi tegund fannst fyrst hér árið
1992 djúpt undan Öndverðarnesi, þ.e.
á sama stað og bleikskatan hér á und-
an. Þá veiddust tvær og voru fyrst
ranglega greindar sem Breviraja caeru-
lea.
Langnefur, Hariotta raleighana
- Mars, utanvert Háfadjúp, 915-1006
m, 3 hængar 74,78 og 79 cm, botn-
varpa.
Langnefur er annar tveggja fiska af
trjónuætt, Rhinochimaeridae, sem
finnst á djúpmiðum hér við land. Hinn
er trjónufiskur.
Pétursskip ýmissa skötutegunda, t.d.
maríuskötu, skötu, náskötu, hvíta skötu
o.fl. tegunda, auk pétursskipa hámúsa-
(Chimaeridae) og trjónuættar, bárust
einnig. Þessi pétursskip geta veitt kær-
komnar upplýsingar um gottíma vib-
komandi tegunda og eru því ávallt vel
þegin.
Berhaus, Alepocephalus agassizii
- Janúar, Háfadjúp utanvert, 531-604
m, 12,5 cm að sporði.
- Mars, suðvestan Reykjaness (62°00'N,
32 ÆGIR