Ægir - 01.03.1996, Page 46
■
Guðfinnur KE 19
eins og hann leit
út fyrir breytingar.
Guðfinnur KE eft-
ir lengingu og yf-
irhalningu hjá
Ósey.
Samkeppnisfærir við aðrar þjóðir
„Gengið er það hagstætt og hefur
verið stöðugt svo að þegar um er að
ræða bátasmíði þá erum við alveg sam-
keppnisfærir við erlendar stöðvar þó
þær séu niðurgreiddar, sem fer þó
minnkandi t.d. í Noregi. Pólverjar sem
hafa veitt hvað mesta samkeppni í þess-
ari grein á síðustu árum eiga í vaxandi
vandræðum vegna hækkandi verðlags.
Það var of mikið af nýjum bátum úr-
elt síðustu árin og eftir sitja of gamlir
bátar. Endurnýjun er að verða mjög
brýn en ég held að sú stöðuga fækkun
sem verið hefur í bátaflotanum undan-
farin ár hafi náð botninum."
Hallgrímur gagnrýnir mjög þær regl-
ur sem gilda um úreldingu, sem hann
telur að standi bátaflotanum fyrir þrif-
um, og bendir á mismunun sem er
milli tréskipa og stálbáta.
„Sá sem á stálbát sem er smíöaður
fyrir 1987 má lengja hann og breikka
á alla kanta án þess að kaupa úreld-
ingu á móti en sá sem á tréskip getur
sáralítið stækkað það. Hann á enga
möguleika nema skipta um bát og
kaupa stálbát en þá þarf hann aö
kaupa alla rúmmetra í úreldingu í
rauninni. Þetta þarf að laga og koma
til móts við tréskipaeigendur því þetta
hefur staðið eðlilegri þróun fyrir þrif-
um.
Það er áreiðanlega nauðsynlegt að
hafa úreldingarkerfi en það verður að
ganga jafnt yfir alla."
Eigendur Óseyjar eru þrír, Hallgrím-
ur Hallgrímsson, Daníel Sigurðsson og
Þórarinn Guðmundsson, og vinna þeir
allir í fyrirtækinu. Hallgrímur er fram-
kvæmdastjóri og þó hann sé ekki með
hvítt um hálsinn í vinnunni þá situr
hann að mestu við skrifborðið. Er hann
þá hættur að smíða sjálfur?
„Nei, það vona ég ekki. Þetta er bara
spurning um tíma."
1988 Ösp GK 210
Mesta lengd úr 8,81 m í 9,47 m
Lengdaraukning 0,66 m
2070 Jón Garðar KE 1
Mesta lengd úr 11,80 m í 13,12 m
Lengdaraukning 1,32 m
Brúttórúmlestir úr 9,70 í 14,02
Brúttótonn úr 17,20 í 20,31
2171 Snorri afi ÍS 519
Mesta lengd úr 7,94 m í 8,86 m
Lengdaraukning 0,92 m
2225 Asi EA 36
Mesta lengd úr 8,27 m í 9,35 m
Lengdaraukning 1,08 m
Vélaskipti í
þilfarsskipum
1544 Viggó Sl 32
Ný vél: Lister, 68 kw. 1986 (notuð)
Áður: DAF, 75 kw. 1979
1792 Árvík ÞH 258
Ný vél: Peugot Vetus, 46 kw. 1995
Áður: Peugot Vetus, 46 kw. 1987
1828 Anna EA 121
Ný vél: Yanmar, 50 kw. 1995
Áður: SABB Diesel, 48 kw. 1987
1859 Sundhani ST 3
Ný vél: Cummins, 114 kw. 1995
Áður: SABB Diesel, 102 kw. 1987
1898 Pétur Jacob SH 37
Ný vél: Cummins, 186 kw. 1995
Áður: Volvo Penta, 210 kw. 1990
1906 Haförn NS 96
Ný vél: Cummins, 74 kw. 1995
Áður: Cummins, 96 kw. 1987
1922 Magnús EA 25
Ný vél: Cummins, 184 kw. 1995
Áður: Caterpillar, 112 kw. 1989
2166 Særún EA 251
Ný vél: Cummins, 200 kw. 1995
Áður: Cummins, 200 kw. 1992
46 ÆGIR