Ægir - 01.03.1996, Page 50
verða skortur á menntuðum járniðn-
aðarmönnum.
Vélsmiðjan Stál fæst ekki eingöngu
við skipaflotann heldur hefur hún
alltaf sinnt alhliða vélsmíði. Þeir hafa
jafnan unnið mikið fyrir Landsvirkj-
un, smíðað lokubúnað og fleiri hluta
í virkjanir og verið einna stærstir ís-
lenskra smiðja á því sviði allt frá virkj-
un Laxár í Aðaldal 1970. Nýlega var
gerður samningur við Stál um endur-
nýjun lokubúnaðar í Sogsvirkjun og
írafossvirkjun og skal því lokið á
tveimur árum.
„Að viðbættum þeim batamerkjum
sem sjást í sjávarútvegi þá get ég ekki
annað en verið bjartsýnn," sagði
Theódór að lokum.
Viljum flytja inn hluta þess sem
er unnið erlendis
segir Eiríkur Ormur framkvæmdastjóri Véismiðju Orms og
Víglundar í Hafnarfirði
„Við vorum mest í nýsmíðum hér áður og unnum mest fyrir hitaveitur
og virkjanir en þegar framkvæmdir í því drógust mjög saman urðum
við að leita á önnur mið,“ sagði Eiríkur Ormur framkvæmdastjóri Orms
og Víglundar sf. í Hafnarfirði í samtali við Ægi. Vélsmiðjan er 25 ára
gamalt fjölskyldufyrirtæki og þar vinna 37 manns og fer heldur fjölg-
andi.
Eiríkur Ormur fram-
kvœmdastjóri Orms og
Víglundar sf. í Hafnar-
firði.
Vélsmiðja Orms og Víglundar hefur
unnið markvisst í því undanfarið ár að
hasla sér völl í skipasmíðum, viðgerð-
um og þjónustu við skipaflotann. í
þessu skyni keypti fyrirtækið Skipa-
smíðastöðina Dröfn í Hafnarfirði sem
stendur á gömlum merg en þar er hægt
að taka upp skip 650-700 þungatonn
og að sögn Eiríks er verkefnastaðan
mjög góð og hefur verið nóg að gera.
Annað sem gert var til aö skapa fyrir-
tækinu rekstrargrundvöll var aö kaupa
flotkví frá Skotlandi sem hefur nú verið
komið fyrir í Hafnarfirði. Þar er hægt að
taka upp til viðgerða skip allt að 3.000
þungatonnum og þegar þetta er ritað er
togarinn Otto Wathne þar í viðhaldi og
endurbótum. Eiríkur sagði að flotkvíin
væri bókuð um tvo mánuði fram í tím-
ann og slíkt teldist góð verkefnastaða í
þessari grein og rekstur hennar hefði
fram til þessa gengið samkvæmt áætl-
unum.
„Það er unnið við skipaflota íslend-
inga erlendis um þessar mundir fyrir
um fjóra milljarða árlega og við viljum
flytja inn þó ekki væri nema hluta af
þeirri vinnu."
6261 Snarpur HF 141
Lenging 1,32 m
Brúttórúmlestir úr 4,24 í 5,52
Brúttótonn úr 3,58 í 5,10
6296 Kristín Björg GK 98
Lenging 0,60 m
Brúttórúmlestir úr 4,96 í 5,86
Brúttótonn úr 4,90 í 5,67
6297 Sæbjörg RE 315
Lenging 0,76 m
Brúttórúmlestir úr 2,80 í 4,14
Brúttótonn úr 2,88 í 3,64
6324 Jói GK 308
Lenging 1,28 m
Brúttórúmlestir úr 2,67 í 4,55
Brúttótonn úr 2,83 í 4,22
6360 Sæunn SF 155
Lenging 0,94 m
Brúttórúmlestir úr 5,34 í 5,34
Brúttótonn úr 4,33 i 5,48
6361 Tinna KÓ 17
Lenging 1,05 m
Brúttórúmlestir úr 4,24 í 4,86
Brúttótonn úr 3,58 í 4,77
6373 Gunnvör GK 59
Lenging 1,28 m
Brúttórúmlestir úr 2,67 í 4,55
Brúttótonn úr 2,83 í 4,20
6400 Sigurður Þorkelsson ÍS 200
Lenging 1,24 m
Brúttórúmlestir úr 5,13 í 5,98
Brúttótonn úr 4,25 í 5,86
6418 Andri BA 64
Lenging 1,20 m
Brúttórúmlestir úr 3,14 í 3,76
Brúttótonn úr 2,58 í 3,71
6487 Bæjarfell RE 65
Lenging 1,50 m
Brúttórúmlestir úr 6,03 í 7,77
Brúttótonn úr 4,86 í 6,95
6565 Lárberg SH 275
Lenging 1,67 m
Brúttórúmlestir úr 4,88 í 6,94
Brúttótonn úr 3,92 í 5,99
50 ÆGIR