Ægir - 01.09.1996, Qupperneq 76
Atlas hf
Athyglisverðar nýjungar
Atlas hf. hefur starfaö í hartnær þrjátíu ár og helgað sig að mestu
þjónustu við sjávarútveg. Að vísu flytur fyrirtækið inn dráttarvélar og
heyvinnutæki en aðaláherslan hefur verið á vélum og tækjum fyrir flot-
ann. Og nú hefur bæst við umsjón með skipaviðgerðum og smíðum í
erlendum skipasmíðastöðvum.
Atlas hf. var stofnað árið 1969 af Ás-
geiri Vilhjálmssyni og fjölskyldu hans.
Síðan hefur fyrirtækið flutt inn vélar í
skip, einkum togara og flutningaskip, og
nú eru fleiri hestöfl framleidd af MAK-vél-
um en nokkurri annarri vélategund í ís-
lenska flotanum.
Auk þess flytur fyrirtækið inn Brusselle
togvindur fyrir togara, Palfinger skipa-
krana fyrir skip og báta, Ziegra ísvélar,
Egger dælubúnað að ógleymdum Mustad
beitningarvélum. Þær síðastnefndu verða
til sýnis í sérstökum bás sem Norðmenn
verða með á sjávarútvegssýningunni, en í
bás Atlas hf. verða aðrar vélar sýndar og
auk þess kynnir fyrirtækið tvær nýjungar.
Magmís Jón Smith sölumaður og Gísli
Ásgeirsson markaðsstjóri hjá Atlas.
Olíuskilja dregur úr mengun
Önnur þeirra er ný tegund af olíuskilju
frá DVZ Service. Þessi skilja er svar við
auknum kröfum um umhverfisvernd en
hún skilur olíu frá lensivatni skipa og
dregur því verulega úr mengun. Að sjálf-
sögðu vilja flestir sjómenn ganga vel um
fiskimiðin og víða hafa verið gerðar
strangar kröfur um að skip losi ekki frá sér
mengandi úrgangsefni nærri ströndum.
DVZ-skiljan er hönnuð með þessar kröfur
í huga og hefur m.a. hlotið viðurkenn-
ingu kanadískra yfirvalda sem gera afar
strangar kröfur um hreinleika lensivatns
sem losað er á Vötnunum miklu og skurð-
um og fljótum sem tengjast þeim.
Skiljan vinnur á einfaldan hátt með því
að hagnýta sér þá staðreynd að vatnið er
eðlisþyngra en olían. Skiljan er tengd við
dælu sem sogar olíublandað kjölvatn úr
kjalsogi skipsins og dregur það inn í skilj-
una. Olían safnast fyrir í skiljunni en
vatnið fer áfram út í sjó. Þegar skiljan er
orðin full af olíu breytir hún snúningsátt
dælunnar sem dælir þá sjó inn í skiljuna.
Sjórinn þrýstir olíunni í soratank þar sem
hún er geymd.
Við prófanir hjá óháðum aðilum hefur
skiljan hreinsað lensivatnið það vel að í
því eru aðeins olíuleifar sem nema 5 hlut-
um af milljón (5 ppm). Til að tryggja
hreinleika vatnsins er skynjari á hlið skilj-
unnar sem fylgist með vatninu. Fari hlut-
fall olíu upp í 15 ppm lokar skiljan fyrir
útstreymið og sendir vatnið aftur í
kjölsogið.
47 metra línubátur
Hin nýjungin tengist því að Atlas hf.
hefur um árabil haft umboð fyrir nokkrar
erlendar skipasmíðastöðvar sem taka að
sér nýsmíðar, viðgerðir og breytingar á
skipum. Þessar stöðvar eru í Póllandi,
Hollandi, Kanada og á Spáni. í framhaldi
af því kviknaði sú hugmynd að láta hanna
skip sem hentaði íslenskum útgerðar-
mönnum og bjóða það á markaði hér á
landi. Komið var á samstarfi við Ráðgarð
hf. sem hefur hannað tvær stærðir af línu-
bátum sem verða kynntar á sjávarútvegs-
sýningunni.
Önnur teikningin er af 47 metra löng-
um bát sem getur stundað línuveiðar
hvar sem er. Þetta skip er 5 metrum
lengra og 10% stærra að rúmmáli en
Tjaldarnir tveir sem gerðir eru út frá
Snæfellsnesi. Tekið hefur verið mið af
reynslunni sem komin er á þau skip og
önnur línuskip hér við land, enda er nýi
báturinn hannaður af íslendingum fyrir
íslendinga svo vitnað sé í þá Gísla Ás-
geirsson markaðsstjóra og Magnús Smith
sölumann hjá Atlas hf.
Þetta nýja skip er búið 600 rúmmetra
frystilest. Vinnsluþilfar er 160 fermetrar
og þar er hægt að koma fyrir vinnslurás.
íbúðir eru fyrir rúmlega tuttugu manna á-
höfn en skipið getur verið samfleytt á sjó í
allt að átta vikur.
„Við munum bjóða þessi skip á föstu
verði og annast um smíði þeirra en skipin
verða smíðuð á Spáni," segir Magnús
Smith. „Við höfum kynnt þau fyrir línu-
sjómönnum á Vestfjörðum og fengum
mjög góðar viðtökur. Menn eru í vaxandi
mæli farnir að huga að línuveiðum, ekki
síst þegar þeir sjá hve stíft Norðmenn hafa
róið á þessum skipum. Þeir eru farnir að
veiða á línu á fjarlægum miðum, til dæm-
is suður við Azoreyjar og Falklandseyjar.
Þarna eru því veruleg sóknarfæri."
Auk skipsins sem lýst er hér að ofan
hefur Ráðgarður hf. hannað minna skip,
22 metra langt, sem ætlað er til veiða með
snurvoð og troll. □
76 ÆGIR