Ægir - 01.02.1999, Side 11
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Byggðarlögin slitin
frá heimamiðum
„Sjávarútvegskerfið okkar er þannig
byggt upp að nýir aðilar geta ekki
komist inn í greinina nema með óvið-
ráðanlegum kostnaði. Vestfirðingar
geta til dæmis ekki vænst þess að geta
nokkurn tímann eignast sambærilega
útgerð og Guðbjörgin ÍS var. Þeir
munu einfaldlega aldrei hafa efni á
því. Veikleiki kerfisins er að aiíaheim-
ildirnar eru færðar til og sjávarplássin
eru skilin eftir, slitin frá sínum mið-
um. Það er óásættanleg niðurstaða og
um hana verður aldrei friður. Fyrr
verður uppreisn í landinu. Vandi okk-
ar er sá að finna breytingu sem koll-
Stærðfræðingur
tengdur inn í ættir
Einars Guðfinnssonar
„Nei, ég hef aldrei unnið í mínu
eiginlega fagi,“ segir stærðfræðing-
urinn og alþingismaðurinn Kristinn
H. Gunnarsson. Hann er fæddur og
uppalinn Reykvíkingur, sonur
Gunnars Kristinssonar fyrrv. hita-
veitustjóra og Auðbjargar Brynjólfs-
dóttur, en flutti vestur á firði og
gerðist kennari á Tálknafirði og
síðan í Bolungarvík. Þar kvæntist
hann inn í fjölskyldu Einars Guð-
finnssonar, hins þekkta útgerðar-
manns, en amma eiginkonu hans var
systir Einars. Með því hófust kynni
hans af sjávarútvegi, fyrst með
störfum beintengdum sjávarútvegi-
num en á síðari árum hefur Kristinn
fylgst með sjávarútveginum á víðara
sviði í gegnum störf sín á Alþingi.
„Eg hef kynnst bæði vinnu í
frystihúsi og sjómennskunni af eigin
raun og hef alltaf kunnað vel við
lífið í sjávarplássunum. Áhuginn á
sjávarútveginum kom af sjálfu sér
hjá mér vegna tengslanna inn í
greinina og síðar kom ég sem bæjar-
stjórnarmaður í Bolungarvík inn í
stjórnun á rekstri þrotabús E.G.“
„ Veikleiki kerfisins er
að aflaheimildirnar eru
fœrðar til og sjávar-
plássin eru skilin eftir,
slitin frá sínum
miðum."
varpar ekki núverandi kerfi, skapar
þeim rekstrargrundvöll sem hafa búið
um sig í kerfinu en gefur jafnframt
öðrum möguleika til að byrja í útgerð
og fiskvinnslu. Núna getur enginn
byrjað að byggja sig upp í útgerð held-
ur fá menn einfaldlega að halda áfram
á meðan bankarnir leyfa," segir Krist-
inn. Að hans mati hefur mikil veiði á
undanförnum árum frestað uppreisn
gegn kerfinu. Kristinn segir kerfið
bjóða upp á mál á borð við Guðbjarg-
armálið; einnig megi benda á önnur
hliðstæð mál á Vestfjörðum sem eigi
það sammerkt að hafa skilið fólkið eft-
ir í kvótalitlum eða kvótalausum
byggðarlögum.
„Einstökum ágöllum
er hægt að breyta"
Kristinn segist hafa trú á að hægt sé að
ráðast í breytingar á fiskveiðistjórnar-
kerfinu án þess að því þurfi öllu að
henda og búa til nýtt. Sé ekki unnt að
FYLGIST NÁKVÆMLEGA MEÐ
AT
AFGASMÆLIR
Fylgist nákvæmlega með.
Getur
komið
í veg
fyrir
kostnaðarsamar
viðgerðir á vél.
!©
a
MDVÉLAR HF.
SMIÐJUVEGUR 28, Pósthólf 597 - 200 Kópavogi - Sími: 567 2800 - Fax: 567 2806
FYLGIST NAKVÆMLEGA MEÐ
Ncm ii