Ægir - 01.02.1999, Side 26
Skinney, Þinganes og Borgey renna saman í eitt á
Hornafirði:
Með 10 þúsund
tonna kvóta
REVTINGUR
Norðmenn og
Færeyingar semja
Norðmenn og Færeyingar hafa
samið um veiðar Færeyinga á
Noregsmiðum.
Samkvæmt samningnum mega
Færeyingar veiða 4.000 tonn af
þorski, en máttu á síðasta ári veiða
1.500 tonn. Ýsukvótinn er 600 tonn
en var 250 tonn á síðasta ári. Auk
þess mega Færeyingar veiða meira
af rússneska kvótanum sínum við
Noreg.
M'eð satneiningu þriggja
sjávarútvegsfyrírtœkja á Höfn í
Homafirði, þ.e. Skinneyjar, Þinganess
og Borgeyjar, verður til eitt af
kvótasterkustu útgerðarfyrirtœkjuni
landsins. Samanlagt ráða fyrirtœkin
yfir 10.000 tonna kvóta.
Skinney hf. og Þinganes ehf. á
Hornafirði keyptu á dögunum 62%
hlutafjár í Borgey hf. á Hornafirði.
Seljendur hlutafjárins voru m.a. Kaup-
félag Austur-Skaftfellinga og sveitarfé-
lagið Hornafjörður. Markmið fyrir-
tækjanna þriggja er að sameina öll
þrjú félögin í eitt og nýta þannig
fyrirsjáanleg samlegðaráhrif, bæði í
veiðum og vinnslu.
Sameinað fyrirtæki mun ráða yfir
um 10 þúsund tonna þorskígildiskvóta
og fer þar með í hóp stærstu
sjávarútvegsfyrirtækja á landindu.
Gangi fyrirætlanir um samrunann
eftir mun nýja fyrirtækið hafa yfir að
ráða átta skipum.
• Yinnuflotgallar: Samfestingur eða jakki og buxur
• Gore-Tex® björgunarbúningur
* Fóðraðir vatnsheldir kuldagallar
* Sjógallar, gúmmíhanskar, beitingarvettlingar,
stígvél, vöðlur
RB-krókar, girni, blýsökkur, járnsökkur,
gúmmídemparar, sigurnaglar, nælur, goggar
1 Sjóstangir, veiðihjól, gervibeitur
Vatnagörðum 14
Sími 581 4470 • Fax 581 2935
Netfang: rafbjorg@vortex.is
Veiðarfæri
26