Ægir - 01.02.1999, Page 27
ÚTGÁFUÁÆTLUN1999
/Eí>ir útnefiiir sjávar-
litvegs í\ri r tæk i ársins 1999
Hart var barist um sjávarútvegs-
sýninguna 1999 og lauk
bardaganum í ársbyrjun 1998. Og
nú líður óðfluga að sýningunni, þar
sem að vanda verður kynnt það
nýjasta sem er að gerast í greininni
og skyggnst inn í framtíðina.
Ægir kynnir sýninguna í
ágústblaðinu og þar verður kjörinn
vettvangur fyrir fyrirtæki að koma
á framfæri því
sem þau kynna á
sýnin8unni-
Kann að vera að Reykjavík
gleymist stundum þegar talað er
um sjávarútvegsplássin á
íslandi. Framhjá því verður
nefnilega ekki litið að
höfuðborgin hefur í gegnum
árin verið ein af helstu
verstöðvum landsins og mörg
gamalgróin útgerðarfyrirtæki
starfa í borginni. Ægir fer á
stúfana með vorinu og kynnir
lesendum sínum verstöðina
Reykjavík í blaðauka í
júníblaðinu. Hinni gleymdu
borg verður komið á blað!
íagrít siávarútvegsins
Sjávarútvegs-
sýningin einn af
viðburðnm ársins
í upphafi skal endinn skoða, eins
og þar stendur! Ritstjórn Ægis mun
slá botninn í árið með útnefninu á
sjávarútvegsfyrirtæki ársins. Sett
verður saman dómnefnd á vegum
Ægis og valið það fyrirtæki hér á
landi sem þykir hafa staðið upp úr
á árinu og gert athyglisverða hluti.
nánar verður ekki rakið hér hvað
lagt verður til grundvallar við mat
á fyrirtæki ársins en fyrirtækið
verður kynnt lesendum Ægis, og að
sjálfsögðu þjóðinni allri þar með, í
desemberblaði Ægis sem koma
mun út skömmu fyrir jól.
Gleymda
Reylgavík!