Ægir - 01.02.1999, Side 29
Útðáfanl99l
Tölublað Blaðauki w Útaáfudaaur
3. tbl. Veiðarfærí og búnaður 25. mars
4. tbl. Fiskurínn og fólkið 23. apríl
5. tbl. Hetjur hafsins 25. maí
6.-7. tbl. Fiskibærínn Reykjavík 25. júní
8. tbl. Sjávarútvegssýningin í Kópavogi 25. ágúst
9. tbl. Fiskvinnslufólkið á gólfinu 24. september
10. tbl. Viðskiptavæðing sjávarútvegsins 26. október
11. tbl Alþjóðavæðing og samstarf yfir landamærí 25. nóvember
12. tbl. Sjávarútvegsfyrírtæki ársins 1999 20. desember
Hetjur hafsins og
sjómaimafélögin
Sjómannadagurinn er ein stærsta hátíð ársins í hugum sjómanna og
fjölskyldna þeirra. í maíblaði Ægis verður sérstaklega beint kastljósinu að
störfum sjómanna og því hlutverki
sem sjómannafélögin gegna. Sjómenn
hafa oft í daglegu tali verið nefndir
hetjur hafsins og víst er að þeir vinna
oft langan vinnudag og álagið er meira
en fólk gerir sér almennt grein fyrir.
Fiskviiuislu-
fólkið á gólfinu
Slor og slabb, bleyta og fiskúrgangur á
gólfum, öskrandi hávaði frá
frystitækjum og flökunarvélum, lág
laun, konur að skera úr fiski, lág laun
og óþolandi vinnutími! Er þetta lýsing á nútíma fiskvinnslu, lýsing sem
átti við um frystihús fyrri ára eða kannski lýsing sem flestir nota um
fiskvinnsluhús í dag en er í raun ekki nema að hluta til nærri
sannleikanum? í september verður í Ægi fjallað um fólkið á gólfinu,
fiskvinnslufólkið sjálft. Margir hafa unnið svo áratugum skiptir í
frystihúsum og líkar vel. Kannski er það lífseigasta þjóðsagan á íslandi að
frystihús séu leiðinlegir vinnustaðir. Vera má að frystihúsinu séu einmitt
skemmtilegir vinnustaðir og sum þeirra með tæknilega fullkomnustu
iðnfyrirtækjum á landinu.
Hvað segir
fólkið í land-
inu um sjávar-
útveginn?
Hver eru viðhorf almennings til ís-
lensks sjávarútvegs? Haft er á orði
að brýnustu verkefni stjórnmála-
manna á íslandi snúi á hverjum
tíma að sjávarútvegi, fjöreggi þjóð-
arinnar. Hins vegar eru ákvarðanir
stjórnvalda sem snerta sjávarútveg
ekki alltaf efstar á vinsældalista
þjóðarinnar, ef marka má fjöl-
miðlaumfjöllun. Ægir mun efna til
skoðanakönnunar á viðhorfum al-
mennings til brennandi spurninga
og verður niðurstaðan birt í apríl.