Ægir - 01.02.1999, Page 34
RE á Reykjaneshrygg. Hann mældist
13 cm á lengd.
Brynstirtla (Trachurus trachurus)
í ágústbyrjun veiddust 10 stk. í botn-
vörpu á 183-238 metra dýpi í Skeiðar-
árdjúpi og voru þrjú mæld 35, 35 og
39 cm. í október veiddust þrjár 34 cm
hver í botnvörpu undan Suðurströnd-
inni. Hrafn Sveinbjarnarson GK veiddi
alla þessa fiska.
Rákungur (Sarda sarda)
í ágúst veiddist 59 cm rákungur og 1,9
kg þungur, í silunganet í Geirþjófsfirði
í Arnarfirði.
Hér er um nýja tegund við ísland
að ræða og verða það að teljast mikil
tíðindi að þessi tegund, sem er meira
strandkær en úthafssækin, skuli hafa
lagst í langferð yfir úthafið til íslands.
Heimkynni rákungs eru í A-Atlants-
hafi frá Bretlandseyjum (og Norðursjó
þar sem hann er flækingur) allt suður
til S-Afríku, að ógleymdu Miðjarðar-
hafi. í V-Atlantshafi er hann frá Nýja-
Skotlandi suður í Mexíkóflóa og við S-
Ameríku. Rákungur telst til sömu ætt-
ar (Scombridae) og makríll og túnfisk-
ur.
Makríll (Scomber scombrus)
Einn makríll veiddist í byrjun ágúst í
botnvörpu Hrafns Sveinbjarnarsonar á
183-238 metra dýpi í Skeiðarárdjúpi.
Hann mældist 42 cm.
Veiðiskipið Rs. Árni Friðriksson RE.
veiddi annan á 33-35 m dýpi í Garðsjó
um miðjan september. Sá mældist 31
cm langur.
Bláskoltur (Brotulotaenia crassa)
í byrjun júlí veiddist í flotvörpu
Snorra Sturlusonar RE fiskur þessarar
tegundar á 732m dýpi vestan við
Reykjaneshrygg og mældist hann 71
cm. Þetta er ný tegund á íslandsmið-
um.
Kambhríslingur (Chirolophis ascanii)
í júlí veiddust í lirfuháf á rs. Bjarna
Karfalingur (Setarches guentheri)
í janúar veiddist 16,5 cm karfa-
lingur í botnvörpu Hrafns Svein-
bjarnarsonar sunnan Vestmanna-
eyja. Þetta mun vera þriðji fiskur
þessarar tegundar sem veiðist á Is-
landsmiðum. Sá fyrsti veiddist 1994
og sá næsti áriðl996. Þeim fer því
hægt fjögandi.
Sæmundssyni tvær kamhríslingslirfur.
Önnur veiddist í Húnaflóa og hin
undan Austfjörðum
Flathaus (Cataetyx laticeps)
Einn fiathaus veiddist í apríllok í flot-
vörpu Snorra Sturlusonar RE á 732 m
dýpi á Reykjaneshrygg og mældist
hann 66 cm.
Drurnbur (Thalassobathia pelagica)
í apríl veiddust 8 stk. 24-36 cm á 631-
732 m dýpi vestan við Reykjanes-
hrygg.
í júlí veiddist einn 23,5 cm langur á
svipuðum slóðum og í september
veiddist einn 31 cm langur á 824 m
dýpi vestur af Jökli
Fiskar þessir komu allir í flotvörpu
togarans Snorra Sturlusonar RE.
Tegund þessi hefur fundist í NA-Ati-
antshafi m.a. djúpt undan SV strönd
írlands, suðvestan Portúgals, vestan
Gíbraltarsunds, við Madeira og Græn-
höfðaeyjar. Einnig undan S-Afríku og í
vestanverðu Atlantshafi.
Sníkir (Echiodon drummondi)
í október veiddust þrír fiskar þessarar
tegundar í botnvörpu rs Bjarna Sæ-
mundssonar á 219-182 m dýpi á Papa-
grunni. Lengd þeirra var 28,6 cm, 28,6
cm og 29 cm. Þessi tegund fannst fyrst
hér við land árið 1956. Nokkrir svona
fiskar sáust gubbast út úr sæbjúgum í
leiðangri Hafrannsóknastofnunar fyrir
nokkrum árum einhversstaðar undan
Suður- eða Suðvesturlandi.
Gráröndungur (Chelon labrosus)
í júlílok veiddist 45 cm gráröndungur
í ósi Laxár á Skógarströnd (Hvamms-
fjörður).
Svartgóma (Helicolenus dactylopterus)
Tvær svargómur veiddust á árinu,
önnur í janúar, 16,5 cm löng, í botn-
vörpu á 549-796 m dýpi suður af Vest-
mannaeyjum og hin í október, 32 cm
á lengd, í botnvörpu í utanverðu
Grindavíkurdjúpi.
Hrafn Sveinbjarnarson GK veiddi
báða þessa fiska.
Urrari (Eutrigla gumardus)
í janúar veiddust fjórir urrarar 31-34
cm í botnvörpu á 220 m dýpi við aust-
anverðan Reykjaneshrygg og í febrúar
veiddust tveir 33 og 38 cm langir í
botnvörpu á Reykjaneshrygg. Veið-
skipið Snorri Sturluson RE veiddi báða
þessa fiska.
Tómasarhnýtill (Cottunculus thomsonii)
í janúar veiddust tveir 12 og 15 cm
langir í botnvörpu Hrafns Sveinbjarn-
arsonar á 458-750 m dýpi sunnan
Vestmannaeyja og í febrúar veiddist
einn 20,5 cm langur í botnvörpu
Snorra Sturlusonar á Reykjaneshrygg
(Stóri?) sogfiskur (Liparis liparis)
í september veiddi Dröfn RE 33 cm
sogfisk í rækjuvörpu á 209-298 m dýpi
í Skjálfandadjúpi
í byrjun október veiddist 29,5 cm
sogfiskur í botnvörpu Snorra Sturlu-
sonará 439 m dýpi út af Barðagrunni,
sem gæti hafa komið úr maga annars
fisks.
Báðir þessir fiskar höfðu öll ein-
34 ÆGIR