Ægir - 01.02.1999, Qupperneq 36
kjálkastirnir (Gonostoma elongatum), slóans
gelgja (Chauliodus sloani), marsnákur
(Stomias boa ferox), kolskeggur (Trigonolampa
miriceps), kolbíldur (Maiacosteus niger), gljá-
laxsíld (Lampadena specuiigera), litla geirsíli
(Arctozenus rissoi), digra geirsíli (Magnisudis
atlantica), trjónuáll (Serrivomer beani),
álsnípa (Nemiclithys scolopaceus), brodda-
bakur (Notacanthus chemnitzii), litla brosma
(Phycis blennoides), blákjafta (Rhinonemus
cimbrius), fjólumóri (Antimora rostrata), silf-
urþvari (Halargyreus johnsonii), bjúgtanni
(Anopiogaster comuta), glymir (Epigonus tel-
escopus), Stinglax (Aphanopus carbo), krækill
(Artediellus atlanticus) Og marhnýtill (Cott-
unculus microps.)
Til viðbótar ofangreindum fiskum
sem allir veiddust innan 200 sjómílna
lögsögunnar eða rétt við hana fengust
nokkrir sjaldséðir fiskar utan lögsög-
unnar í leiðangri rs. Bjarna Sæmunds-
sonar í maí. Þeirra á meðal eru (Ev-
ermanella balbo ) sem ekki hefur feng-
ið íslenskt nafn ennþá en þrír veiddust
djúpt suðvestur af landinu. Vom þeir
10-11 cm langir að sporði. Spjótáll
(Serrivomer brevidentatus), nefáll (Nessorhamp-
hus ingolfianus), 68 cm, deplagleypir (Pseu-
doscopelus aitipinnis) og karfalingur (etarches
guentheri) 15 cm. Nefáll hefur fundist
innan 200 sjómílna markanna og var
það árið 1997 en þá veiddust tveir 52
og 64 cm á Reykjaneshrygg, einnig
deplagleypir (1996) og karfalingur
(1994).
Þá veiddist óhemju stór þorskur,
170 cm langur undan SA-landi í apríl
og í júlí veiddist 80 cm skarkoli í Eaxa-
flóa. Hann var 18 ára gamall.
Einnig barst grár karfi, 39 cm lang-
ur sem veiddist í utanverðu Grinda-
víkurdjúpi og hvítar, rauðar og gular
grálúður af miðunum vestan við land-
ið.
Loks má geta nokkurra hryggleys-
ingja sem við fengum til athugunar en
þeir voru kórall (Stephanotrochus diadema
(vantar nafh á íslensku)) sem fékkst sunnan
Vestmannaeyja á 458-750 m dýpi,
smákrabbi að nafni agnarögn
Kjáni (Chaunax sp.)
Hrafn Sveinbjarnarson GK veiddi
einn kjána í gulllaxvörpu á 304-403
m dýpi í júní suður af Surtsey. Hann
mældist 16 cm á lengd og er þetta
þriðji fiskur þessarar tegundar sem á
íslandsmiðum veiðist. Sá fyrsti
veiddist í nóvember 1997 sunnan
Vestmannaeyja og mældist 9,5 cm,
annar sem var 15 cm fékkst í desem-
ber sama ár á Reykjaneshrygg.
Flest bendir til þess að hér sé um
tegundina C. suttkusi að ræða
(Gnathophausia sp.) veiddist vestan við
Reykjaneshrygg á 732 m dýpi, gler-
rækja (Pasiphaea multidentada) fékkst
einnig á sömu slóðum, skarlatsrækja
(Plesiopeneus edwardsianus) veiddist á utan-
verðu Hampiðjutorgi fyrir vestan
landið, tenglingur (Munida tenuimana)
kom af miðunum sunnan Vestmanna-
eyja, blindkrabbi (áður kallaður
blindrækja), Stereomastis sculpta
veiddist á 631 m dýpi á Reykjanes-
hrygg, sundkrabbi (Macropipus holsatus)
fékkst einnig á Reykjaneshrygg, tinda-
krabbi (Neolithodes grimaldii) veiddist á
línu á 1464 m dýpi í vesturkanti
Reykjaneshryggs í september, nokkrir
beitusmokkar bárust og krossfiskarnir
(Psiiaster andromeda, Radiaster tizardi og
Pseudarchaster parelii) veiddust í janúar í
botnvörpu sunnan Vestmannaeyja á
458-750 m dýpi.
Þeir sem sendu fiska og/eða upplýs-
ingar um þá fá kærar þakkir og viljum
við sérstaklega geta þeirra Aðalsteins
Einarssonar, Þingeyri, Halls Gunnars-
sonar, Grindavík, Helga Leifssonar,
Eskifirði og Magnúsar Þorsteinssonar,
Hafnarfirði.
Helstu heimildir:
Bjami Sæmundsson. 1926. Fiskarnir
(Pisces Islandiae). íslensk dýr I. Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssoanr. xvi+528
bls.
Gunnar Jónsson. 1992. fslenskir fisk-
ar. 2. útg. aukin. Fjölvaútgáfan. 586 bls.
Gunnar Jónsson, Jakob Magnússon,
Vilhelmína Vilhelmsdóttir og Jónbjörn
Pálsson. 1998. Nýjar og sjaldséðar fisk-
tegundir árið 1997. Ægir 91(2):18-22.
Whitehead, P.J.P. o.m.fl. (ritstj.). 1984-
1986. Fishes of the North-eastern-Atlant-
ic and the Mediterranean. 1-3. Unesco.
Paris. 1473 bls.
Gott ár í rekstri
Guðmundar
Runólfssonar hf.
Árið 1998 var hagstæðara í rekstri
Guðmundar Runólfssonar hf. í
Grundarfirði en ráð hafði verið fyrir
gert. Hagnaðurinn nam um 40
milljónum króna, sem er 37 milljón-
um króna betri afkoma en á árinu
1997. Fyrirtækið birti á dögunu af-
komutölur og sýna þær til að mynda
að veltufé frá rekstri jókst um ná-
lega 40 milljónir króna og framlegð
var um 24%, sem þykir afar gott.
Fyrirtækið hefur til skamms tíma
verið skráð á vaxtarlista Verðbréfa-
þings. Á aðalfundi í mars verður
gerð tillaga um greiðslu 10% arðs til
hluthafa.
36 Æ3IR