Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1999, Qupperneq 45

Ægir - 01.02.1999, Qupperneq 45
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI skipamálningu frá Slippfélagin í Reykja- vík. „Okkur finnst breytingarnar koma mjög vel út. Báturinn er greinilega stöðugri í sjó og þar kemur lengingin til sögunnar. Því til viðbótar er veltitangur í nýja skutnum og mér finnst hann skila sér í meiri stöðug- leika," segir Jóhannes. Brimnes var smíðað árið 1979 og mun þetta vera stærsta breytingin sem gerð hefur verið á bátnum síðan hann var nýr. Fyrir lengingu var Brimnes skráð 73 brúttólestir að stærð en mælist nú 85 brúttólestir. Jóhannes segir að mjög vel hafi gengið að fiska á bátinn eftir að hann kom heim. „Við höfum verið á línu, mest í kringum Víkurálinn í afar góðu fiskiríi. Það er eiginlega sama hvert farið er, við finnum alls staðar þorsk. Þetta er þokkalega góður fiskur, engin stórfiskur samt. En fiskiríið á þorskin- um gerir að verkum að við verðum fljótt búnir með kvótann, ef svona heldur fram," segir Jóhannes. Bjarg hf. rekur eigin fiskverkun og saltar þorskinn en fyrirtækið hefur líka yfir töluverðum steinbítskvóta að ráða og veiðir hann á útmánuðum. „Við frystum steinbítinn og mér sýnist markaðsstaðan á þeirri afurð vera í ágætu lagi, ekkert síðri en var í fyrra. Steinbíturinn er lítið farinn að láta sjá sig hér ennþá en við bíðum eftir því að loðnan gangi vestur eftir. Þorskurinn eltir hana af okkar steinbítsmiðum og þá getum við farið að sinna honum. Ef loðnan kemur ekki er hins vegar óhjákvæmilegt að það verður talsverður þorskur innan um steinbítinn," segir Jóhannes Héð- insson, skipstjóri og einn eigenda Brimness BA 800 á Patreksfirði. Helstu breytingar og verktakar Hönnun breytinga Smíði Sandblástur Hempels málning Asdic í brú Brimnes BA 800 VIÐ ÓSKUM ÚTGERÐ OG ÁHÖFN TIL HAMINGJU MEÐ BREYTINGARNAR Á SKIPINU. T3 C E Hjalteyrargötu 20 l 600 AKUREYRI J SÍMI: 460 7600 FAX: 460 7601 1 NGNÍ 45

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.