Ægir - 01.02.1999, Blaðsíða 47
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Haraldur Böðvarsson hf. gerir fyrir
út 7 skip, þ.e. nótaveiðiskipin Víking
AK-100, Elliða GK-445, skuttogarana
Höfrung 111 AK-250, Harald Böðvars-
son AK-12, Sturlaug Böðvarsson AK-
10, Svein Jónsson KE-9 og vertíðarbát-
inn Jón Gunnlaugs GK-444.
Skipstjórar Óla í Sandgerði AK eru
tveir, þeir Gunnlaugur Jónsson og
Marteinn Einarsson, Ágúst Símonar-
son er yfirvélstjóri, útgerðarstjóri er
Sveinn Sturlaugsson og framkvæmda-
stjóri Haraldur Sturlaugsson. Skipið fer
fyrst um sinn til veiða með loðnunót
en í vor verður það gert klárt til
kolmunnaveiða með flottroll.
Örstutt saga Óla í Sandgerði AK
Skipið hét áður M/S Innovation Lie,
smíðað fyrir Lie Management á Sotra í
Noregi og afhent um mitt ár 1998.
Skipið er nýsmíði nr. 62 frá skipa-
smíðastöðinni Eidsvik Skipsbyggeri í
Uskedalen en skrokkur þess var smíð-
aður í Póllandi hjá Northern Shipyard.
Innovation Lie var í síldarflutningum
en að öðru leyti verkefnalítið í noskri
lögsögu og því sett á söluskrá. Skipið
var málað fyrir heimkomu.
Helstu breytingar
eftir heimkomu
Eftir að skipið kom til heimahafnar
var hafist handa við að útbúa það til
loðnuveiða. í vélarúmi var vélgæslu-
klefa komið fyrir og aðalvél skipsins
skoðuð. Eftir loðnuvertíðina er fyrir-
hugað að setja niður sérstakar 50
tonna flottrollsvindur frá Rapp á und-
irstöður snurpuvindanna. Snurpu-
vindurnar verða færðar til og komið
fyrir þvert á snurpugála fyrir aftan fyr-
irhugaðar togvindur. Þá verður skut-
gálga breytt og hann endurbættur
með hlerastólum fyrir toghlera
flottrollsins.
Almenn lýsing
Skipið er sérhæft tog- og nótaveiði-
skip.. Vik og Sandvik AS teiknaði skip-
ið, og smíðin var undir eftirliti og í
flokkun „Det Norske Veritas"+ 1A1-
Fisching vessel S. Bandbil skips-
skrokksins, sem er úr stáli, er 0,6 m og
hönnunardjúprista er 6 m. Lestar
skipsins eru þrjár, allar útbúnar sem
sjókælitankar með lang- og þver-
skipsþiljum, alls 11 tankar.
Fyrirkomulag
Skipið er með tvö þilför stafna á milli,
sex vatnsþétt þverskipsþil undir neðra
þilfari, peru á stefni undir sjólínu og
gafllagaðan skut. Þilfarshús og reist
brú er á afturskipi á efra þilfari og
nótakassi aftast á aðalþilfari. Aftur-
hluti aðalþilfars yfir vélarúmi er reist-
ur. Botn skipsins er tvöfaldur að véla-
rúmi og í holrýminu eru tankar fyrir
eldsneyti og kjölfestu. Þeir eru, taldir
framan frá: stafnhylki fyrir sjó, þá að-
gengilegt sónar-, kælivéla- og bóg-
skrúfurými, eldsneytistankar, vélarúm
með ýmsum geymum og eldsneytis-
geymar í skut.
Fremst á aðalþilfari er geymsla og
keðjukassi. Miðskips fyrir framan lest-
arþil er stigahús upp á efra þilfar og
rými fyrir rafknúnar spildælur og vél-
búnað lofttæmidælu (vakumdælu).
Lestar skipsins eru þrjár með göng-
um úti í báðum síðum á aðalþilfari. í
Helstu mál og stærðir
Aðalmál:
Mesta lengd (Loa)...................................................60,90 m
Lengd milli lóðlína.................................................55,00 m
Breidd (mótuð)......................................................11,60 m
Dýpt að efra þilfari.................................................7,00 m
Dýpt að neðra þilfari................................................4,50 m
Rými og stærðir:
Eigin þyngd......................................................916 tonn
Særými við 6,0 m djúpristu um..................................-2400 tonn
Lestarými..............................................................1210 m3
Brennsluolíugeymar......................................................250 m3
Kjölfestugeymar..........................................................23 m3
Stafnhylki (sjór)........................................................22 m3
Ferskvatnsgeymar....................................................51,6 m3
Andveltigeymir.....................................................79,8 m3
Mæling:
Brúttó rúmlestir...................................................547,29
Brúttótonn.............................................................1103
Nettótonn..............................................................331
Hraði í reynslusiglingu..........................................17 hnútar
Rúmtala...........................................................2871,0 m3
Skipaskrárnúmer........................................................2334
Áætlaður aflvísir.....................................................12384
Áætluð bryggjuspyrna...............................................61 tonn
M31R 47