Ægir - 01.02.1999, Side 49
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
stjómborð fyrir togspil og netatromlu.
Frá brú er utangengt aftur á bátaþilfar.
Aftan við brúna er vélknúinn slöngu-
bátur staðsettur í gálga og skorsteins-
hús er þar fyrir aftan. Á þaki brúar er
radar-, fjarskipta- og ljósamastur.
Ýmis kerfi fyrir íbúðir
Ibúðir eru hitaðar upp með rafmagns-
ofnum og loftræstar með hitastýrðum
loftblásara. Tvö 300 lítra Hydrofor
vatnsþrýstikerfi eru fyrir neysluvatn
og salerni. Afrennsli frá salernum er
safnað í tank í vélarúmi.
Móttaka afla
Uppsjávarfiskum s.s. loðnu eða síld er
dælt með 14" RAPP fiskidælu frá nót
eða vörpu upp í sjóskilju á efra þilfari.
Þar er sjórinn skilinn frá aflanum og
aflinn rennur í stokkum frá sjóskilju
niður í tanka lestarinnar.
Lestartankar
í skipinu eru þrjár lestar, framlest,
miðlest og afturlest. Lestarnar eru inn-
réttaðar sem 11 tankar og eru þeir
framlengdir upp í gegnum aðalþilfarið
og upp á efraþilfar og lokast þar með
lestarlúgum sem eru útbúnar hver
með fiskilúgu.
Hverri lest er skipt í tanka með
langskipsþiljum og miðlestin að auki
með þverskipsþilju. Lestarnar eru ein-
angraðar út í síðum, botni og þiljum
með polyureþan og klæddar stáli.
Lestartankar eru búnir fiskidælu-
búnaði, sjókælingu og blöndun ósóns
í hráefni með óson generator frá AZC-
Ozon.
Fiskidæiubúnaður
Skipið er útbúið með lofttæmidælu frá
MMC, sem getur dælt afla frá öllum
lestartönkum. Tankur dælunnar er
2000 lítrar. MMC fiskidælan er knúin
tveimur loft-þrýsti/tæmi dælurn sem
hvor um sig er 37 KW. Dælan er stað-
sett fyrir framan lestarþil í framskip-
inu ásamt ósón búnaði.
Sjókælibúnaður
Sjókælikerfið er frá Midt-Troms Kjöles-
ervice og eru afköst kerfisins um ÍMW
eða 860.000 kcal/h. Kæliþjöppurnar
eru tvær, skrúfuþjöppur frá MTK
Howden, hin stærri er XRV 163 — 193
með 132 kW rafmótor og hin er XRV
127 — R5 með 110 kW rafmótor.
Kælimiðill kerfisins er freon R22.
Vindu- og losunarbúnaður
Vindubúnaður er frá Rapp Hydema.
Vindubúnaðurinn er allur vökvaknú-
inn með rafmótorum sem knýja há-
þrýstar vökvadælur og er vinnuþrýst-
'mm *.
"■'v F
coi
VERKFRÆÐISTOFA
FENCUR
CONSULTING ENGINEERS
Dalshraun 13
220 Hafnarfjörður
Sími: 565 5090
Fax: 565 2040
r
Oskum útgerð og áhöfn
innilega til hamingju með skipið!
AC,IIR 49