Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Síða 14
12
menntunina, sem ekki virðist vanþörf á, að þjappa gagn-
fræðanámi Reykjavíkur- og Akureyrarskóla saman í 2 ár
9 mánaða og nota 3. bekki gagnfræðadeildanna, sem þannig
spöruðust, sem undirbúningsbekki undir lærdómsdeildir
beggja skólanna. Yrðu undirbúningsbekkir þessir einskonar
hreinsunareldar upp í lærdómsdeildirnar, þannig að þeim
einum væri hleypt upp úr þeim, er fengju háar einkunnir
i aðalnámsgreinunum, t. d. latínu og stærðfræði, skriflegri
og munnlegri, og að öðru leyti sæmilegt próf,' t. d. 5.«r í
aðaleinkunn eins og nú er heimtað. Með þessu ynnist tvennt,
að nemendur fengju betri undirbúning í aðalnámsgreinunum
en þeir nú fá, en skólastjórn og kennurum væri í lófa lagið
að hleypa ekki öðrum upp í lærdómsdeild en þeim, sem
ættu það fyllilega skilið. Þessi nýbreytni hefði heldur ekki
haft eins eyris kostnaðarauka fyrir landið, en hefði hlotið
að draga þó nokkuð úr stúdentaviðkomunni og bæta lær-
dómsdeildina að miklum mun, þar sem einu ári hefði verið
skeytt neðan við hana, eins og annarsstaðar er titt, og hún
því hefði getað veitt betri og meiri fræðslu en áður.
Nú hefir kennslumálastjórnin, eins og kunnugt er, ekki
viljað sinna þessum tillögum, heldur hefir hún tekið það
ráð að loka Menntaskólanum að neðan nema fyrir ákveðna
tölu nemenda *25); hinum 17, sem taldir voru tækir í 1.
hekk gagnfræðadeildar nú í vor, hefir hún synjað um upp-
töku í skólann, en aftur á móti stofnað, skv. ákvörðun síð-
asta þings, svonefndan »ungmennaskóla« í Reykjavík, sem
þó ekki samkvæmt tilætlun þingsins átti að verða eiginlegur
gagnfræðaskóli. Afleiðingin af þessu hefir orðið sú, að feður
þeirra barna, er synjað var upptöku i Menntaskólann, hafa
nú stofnað nýjan skóla, Gagnfræðaskóla Reykvíkinga, sem
ég hefi verið beðinn að veita forstöðu, að minnsta kosti um
stundarsakir, á meðan hann er að komast á laggirnar eða
þangað til séð verður, hvaða afstöðu þingið tekur til þess-
ara mála. En að full þörf sé á bæði sérstökum ungmenna-
skóla og sérstökum gagnfræðaskóla hér í Reykjavík, sést á
því, að um ungmennaskólann hafa sótt 56 nemendur, en