Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Síða 22
20
Kennsla í bókfærslu. Út af erindi frá 16 stúdentum laga-
deildar um það, að þeim verði séð fyrir kennslu í bókhaldi,
samþykkti háskólaráðið á fundi 12. okt., að verða við beiðni
þessari. Forseta lagadeildar var falið að sjá um ráðning
manns til þess að annast þessa kennslu. Kostnaður við
kennsluna, sem áætlaður er allt að 400 kr., greiðist af óviss-
um útgjöldum háskólans.
Tillögur um fjármál. Samþykkt var á fundi 21. nóv. að
fara fram á þessar upphæðir á fjárlagafrv. fyrir 1930.
A. Hækkun náms- og húsaleigustyrks, svo og, að lágmark
námsstyrks haldist, en háskólinn sé látinn sjálfráður
um hámarkið.
B. Að styrkurinn til söngkennslu innan guðfræðisdeildar
haldist.
C. Að til kennslu i geðveikrafræði séu veittar 1000 kr., ef
stjórnin hefir ekki þegar séð fyrir ókeypis kennslu í
þeirri grein.
D. Nýr liður. Til Rannsóknarstofu háskólans allt að 3000
kr. Ástæðan fyrir þessari fjárbeiðni er sú, að rannsóknar-
stofan starfar nú að mestu leyti í þarfir heilbrigðis-
stjórnar og lækna landsins, en aðeins að nokkru leyti
fyrir háskólgnn.
E. Nýr liður. Til kennslu í bókhaldi kr. 400.00.
F. Að liðirnir k, 1 og 2 um dyravörð og háskólaritara
verði sameinaðir, þegar mannaskifti verða næst, og lág-
markslaun verði kr. 4000 með dýrtíðaruppbót, auk þeirra
hlunninda, sem dyravörður hefir nú, en núverandi
ritara og dyraverði verði þá séð fyrir sæmilegum eftir-
launum.
Laun háskólakennara. Háskólaráðið telur laun háskóla-
kennara, eins og flestra annara starfsmanna ríkisins, óviðun-
andi. Telur það því máli bezt borgið með þvi, að nefnd
milli þinga verði sett til þess að rannsaka launamál embættis-
manna og undirbúa nýja löggjöf um það efni.