Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 25
23
1 tilefni af þessu bréíi var rektor og Guðm. Hannessyni
próf. falið að leita hófanna við bæjarstjórn um lóð handa
háskólanum og bua málið undir næsta fund (1l'/i.).
Undirbúningsnefnd þessi fór til borgarstjóra, og taldi hann
sennilegt, að háskólinn fengi ókeypis áætlaða lóð við Skóla-
vörðutorg, en ólíklegt, að háskólinn fengi ókeypis heitt vatn
til upphitunar (*l,/i.).
Rektor skýrði frá (8'/s.), að bæjarstjórn hefði verið skrifað
um ókeypis lóð undir húsbyggingar háskólans og ókeypis
upphitun, en að málinu hefði verið skotið til fasteigna-
nefndar.
Loks skýrði rektor frá því, á fundi 8. marz, hvernig bæjar-
stjórn hefði skilizt við lóðarbeiðni háskólans. Lagði hann
fram svofelldan útdrátt úr fundargerðum fasteignanefndar:
— »9. Rætt um lóð undir háskóla. Nefndin telur rétt, að
Háskólanum verði ætlað svæðið milli Skólavörðutorgs og
Barónsstígs fyrir norðan Stúdentagarðinn, og mun það vera
ca. einn hektari að stærð, en gerir að svo stöddu ekki til-
lögu um afhending landsins«.
Þá var málinu skotið til deildanna, svo að þær gætu sagt
til þess, hver í sínu lagi, hve mikils húsrúms og marghátt-
aðs þær myndu þurfa.
Þá er svör voru komin frá deildunum (13. apríl), bætti
háskólaráð því við, sem því þótti við þurfa, svo sem her-
bergi fyrir háskólaráð, kennarastofu, íbúð fyrir háskólaritara
(á 1. eða 2. lofti) og íbúð fyrir umsjónarmann miðstöðvar
(i kjallara) og fól síðan rektor að afgreiða málið í hendur
kennslumálaráðherra. Var það gert með bréfi, dags. 16. apríl
1929, og áskildi háskólaráðið sér þar að vera með í ráðum
um væntanlega teikningu að háskólabyggingunni og allan
annan undirbúning.
Styrkur til Hamborgarferðar. Á fundi 6. desbr. 1928
skýrði forseti læknadeildar frá, að 9—10 læknadeildar-
nemum hafi verið boðið til Hamborgar til mánaðar dval-
ar á vegum háskólans þar. Væri þeim ætlað að ganga