Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 32
30
þær voru árið 1927 kr. 8636.00 og árið 1928 kr. 7010.00.
Ennfremur skýrði rektor frá þvi, að hann hefði fengið
skýrslu frá landlækni um það, hvað greitt hefði verið af
heilbrigðisstjórninni til stofnunarinnar fyrir unnin verk.
Forseti læknadeildar lagði til, að háskólaráðið hið fyrsta
leitaðist við að ná samningum við landsstjórn og forstöðu-
mann rannsóknarstofunnar, svo að stofan gæti haldið áfram
störfum sem háskólastofnun.
Kom þá fram svolátandi breytingartillaga: Með skírskotun
til þeirra samþykkta háskólaráðs, að hætta að styrkja Rann-
sóknarstofu háskólans af fé Sáttmálasjóðs, felur háskóla-
ráðið varaforseta að leita samninga við landsstjórnina um
fjárhagsafkomu stofnunarinnar framvegis. Breytingartillaga
þessi var samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum.
Áður hafði forseti læknadeildar, á fundi 10. s. m., farið
fram á, að rannsóknarstofunni væru veittar af Sáttmálasjóði
kr. 1500.00 í viðbót við þingstyrkinn, kr. 2500.00; en þar eð
háskólaráðið hefir áður (á fundi 14. maí 1928) ályktað, að
hætta að leggja fé til hennar, þar sem rannsóknarstofan
hefir svo miklar tekjur, að hún á að geta borið sig sjálf,
var tillaga þessi felld með 4 atkv. gegn 1 (G. H.).
Minningarsjóður Halldórs H. Andréssonar. Á fundi
21. maí lagði rektor fram bréf hjónanna Andrésar Ólafs-
sonar og Guðrúnar Halldórsdóttur, meðt. 14. s. m., þar sem
þau tilkynna, að þau gefi háskólanum 1369 kr. til sjóðsstofn-
unar í minningu sonar sins Halldórs H. Andréssonar, stud.
jur. Bréfinu fylgdi skipulagsskrá fyrir sjóðinn, sem hjónin
æskja konunglegrar staðfestingar á. Rektor lagði og fram
bréf, dags. 14. maí, þar sem hann þakkar gjöfina.
Sendikennarar. Samkvæmt samþykkt og fyrirmælum há-
skólaráðs hafði rektor tekið á móti þessum sendikennurum
og gestum háskálans á árinu:
Lýðháskólastjóra Georg Christensen frá Haderslev, er hafði