Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 33
31
haldið 10 fyrirlestra um: »Tanker og Typer i dansk Littera-
tur i det 19. Aarhundrede« í byrjun fyrra kennslumisseris.
Próf., dr. phil. Joh. Östrup, Austurlandafræðingi, sem í
febrúar flutti 12 fyrirlestra um andlegt líf Múhammedstrúar-
manna á ýmsum tímum.
Próf., dr. phil. Magn. Olsen, frá Oslo, sem skv. boði há-
skólans hélt hér 2 fyrirlestra á viku í 6 vikur frá 20. april
til 31. mai um forsögu og fornan átrúnað Norðurlandabúa
og veitti auk þessa norrænu nemendum tilsögn í rúnalestri.
Gestum þessum var fagnað á ýmsan hátt og farnar með
þeim smáferðir hingað og þangað um nágrennið og stóð
rektor jafnaðarlegast fyrir því. Á fundi 10. maí var samþykkt
að greiða honum 500 kr. þóknun af óvissum útgjöldum Sátt-
málasjóðs vegna umsvifa og kostnaðar 1 víðtöku þessara er-
lendu gesta.
Enn var í lok skólaársins með símskeyti boðuð koma
fjórða sendikennarans, lektors Thorkild Rooses. Pótti þá há-
skólaráði nóg um og réði frá komunni, með því að háskóla-
árið væri að enda, en próf í aðsigi. En lektorinn lét ekki
letjast og var hér vel fagnað og annaðist varaforseti í fjar-
veru rektors þær viðtökur.
Afmæli Kaupmannahafnarháskóla. Samþykkt var á
fundi 2. apríl, að háskólaráð gengist fyrir ávarpi til Kaup-
mannahafnarháskóla í lilefni af 450 ára afmæli hans. Skyldi
kennurum háskólans og öllum kandidötum frá Kaupmanna-
hafnarháskóla gefinn kostur á að rita nafn sitt undir. Ávarpið
skyldi semja á latínu og var rektor falið að annast fram-
kvæmd þessa. Síðan var rektor á fundi 26. apríl falið að fara
utan með ávarpið og færa Khafnarháskóla það á afmælis-
hátíð hans um mánaðamótin maí og júní. Undir ávarpið
rituðu 111 manns.
Háskólinn í Toulouse. Háskólanum barst boð um að
sækja 700 ára afmælishátíð háskólans i Toulouse og var
samþykkt að afþakka það (18‘/*.)•