Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Side 48
46
grænkáli, sem saxað var hrátt í kjötkvörn. Er talið, að snerting
við suma málma, einkum járn eða kopar, meðan saxað er (hníf-
ur, kvörn o. fl.) eigi að jafnaði mestan þátt í eyðingunni, sem oft
er mun meiri en þetta dæmi sýnir. Snerting við þessa málma í
matarílátum eða suðupottum getur valdið hraðfara eyðingu C-
vítamínsins, en aluminíum og tin hefur ekki slík áhrif.
Ef kál eða annað grænmeti er saxað eða hakkað hrátt og síð-
an soðið, má búast við, að mestur hluti vítamínsins tapist úr því.
Þannig mældust eitt sinn aðeins 14,6 mg í grænkáli, er þeirri
meðferð hafði sætt, en upphaflega voru 105 mg í því.
1 hvítkálsjafningi (12 g hvítkál, soðið og smátt skorið, 5 g
smjörlíki, 5 g hveiti; soðið 1 mínútu) mældust 13 mg af C-víta-
míni, og í grænkálsjafningi 32,9 mg (200 g grænkál, soðið 5
mínútur, 50 g smjörlíki, 25 g hveiti, 100 ml mjólk). öðru sinni
mældust aðeins 12,7 mg í grænkálsjafningi (samsetning ekki
tilgreind).
TAFLA 16.
C-vítamín í steiktri kindalifur, mg/lOOg.
Vitamin C in fried liver (sheep), mg/100 g.
Dagsetning Date of examination Lifur Liver Mismunur Difference Athugasemdir
Hrá Raw Steikt Fried Mg % Notes
15/10 1947 23,3 19,3 4,0 17,2 Steikt í sneiðum 2mín. Soðið í 3 mín.
15/10 1947 23,3 17,5 5,8 24,9 Steikt heil 2 mín. Soðið í 10 mín.
15/10 1947 24,4 21,2 3,2 13,1 Steikt 2 mín. Soðið 5 mín.
Meðaltal. Average 18,4
Lifur. Af matreiddri kindalifur voru athuguð þrjú sýnishorn,
sem í töflu 16 greinir. C-vítamíntapið er ekki tilfinnanlegt, undir
20% að meðaltali.
Við endurtekna mælingu næsta dag, þ. e. eftir 18 klukkustund-
ir, hafði C-vítamínmagnið lækkað niður í 13,3, 12,2 og 19,0 mg
(talið í sömu röð og í töflunni) eða um 31, 30 og 10%.
Hrogn. 1 nýsoðnum hrognum mældust eitt sinn 19,6 mg, en
öðru sinni — að vísu 2 klst. eftir að soðið var — aðeins 5,4 mg.