Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 22
um án þess að gera sérstakan samning. Af þeim 135 stúdentum sem gerðu
samning 1999 voru 66 með dyslexíu, 32 voru langveikir, 17 glímdu við sálræn
vandamál, 12 voru hreyfihamlaðir, 5 sjóndaprir og 3 heyrnarskertir.
Þróunarverkefni og rannsóknir
Tveir námsráðgjafar við NHÍ. Auður R. Gunnarsdóttir og Ragna Ólafsdóttir. hafa
undanfarin tvö ár haft umsjón með samstarfsverkefni íslendinga, Skota og íra -
ráðgjöf fyrir fullorðna (Adult Guidance) - sem hefur notið styrkja úr Leonardó-
áætlun Evrópusambandsins. Markmið verkefnisins er að koma á fót samevr-
ópsku þjátfunarverkefni fyrir ráðgjafa sem vinna við endurmenntun fullorðinna.
Þjátfunin hérá landi hófst í september 1998 og lauk haustið 1999. 17 ráðgjafar
tóku þátt í verkefninu.
Haustið 1999 var sett af stað þróunarverkefni undir stjórn Jónínu Kárdal náms-
ráðgjafa. Verkefnið fólst í að móta aðferðir í námstækni sem taka sérstakt mið af
þörfum nemenda með dyslexíu. Sjóður Odds Ólafssonar lagði verkefninu lið með
góðum fjárstuðningi.
Samstarf við félagsvísindadeild
Mikitvægur og vaxandi þáttur í starfsemi ráðgjafa NHÍ er að sinna þjálfun nem-
enda sem eru að læra námsráðgjöf. Nemendur í námsráðgjöf þurfa altirað tjúka
ríflega helmingnum af starfsþjálfunartímabili sínu hjá Námsráðgjöf H.í. eða 125
tímum hver. Árið 1999 hófu 15 nemendur starfsþjálfun hjá NHÍ en 8 nemendur
luku ötlum starfsþjálfunartíma sínum þar, samtals 225 stundum hver.
Nemendaráðgjöf
Námsráðgjöf H.í. hefur umsjón með störfum nemendaráðgjafa og heldur nám-
skeið fyrir þá á hverju hausti þarsem fjatlað er um skilgreiningu á hlutverki og
verkefnum þeirra. Fjöldi nemendaráðgjafa er um 70 tatsins.
Námskynningar
NHÍ stendur fyrir kynningum á námi við H.f. að beiðni framhaldsskólanna. Árið
1999 fóru námsráðgjafar í nokkrar heimsóknir í framhaldskóla á höfuðborgar-
svæðinu og í dreifbýlinu, í nokkrum tilvikum með aðstoð fjarfundakerfis H.í. NHÍ
kom einnig að skipulagningu sameigintegrar námskynningar skóla á háskólastigi
sem haldin var 11. apríl þar sem allar námsleiðir í Háskóta fstands voru kynntar.
Nefnda- og stjórnarstörf
Fulltrúar frá Námsráðgjöf H.í. áttu sæti í eftirtöldum nefndum og stjórnum árið
1999: Námsnefnd í námi í náms- og starfsráðgjöf innan félagsvísindadeildar. út-
htutunarnefnd Fétagsstofnunar stúdenta og stjórn Þjónustumiðstöðvar náms- og
starfsráðgjafa.
Tungumálamiðstöð
Stjórn Tungumálamiðstöðvar Háskóla fslands skipa: Auður Hauksdóttir. Ingjatdur
Hannibalsson, Pétur Knútsson. Sigríður D. Þorvatdsdóttir og Torfi Tulinius sem er
stjómarformaður. Deildarstjóri miðstöðvarinnar er Eyjólfur Már Sigurðsson og
var hann jafnframt eini starfsmaður hennar á árinu auk nema í hlutastarfi sem
ráðinn vartil starfa með hjálp Aðstoðarmannasjóðs Háskólans.
Eftir eins árs undirbúningsstarf var Tungumálamiðstöð H.í. formtega opnuð hinn
6. september 1999. Sama dag hófst kennsla í fjórum tungumálum í miðstöðinni.
Hér er um sjálfsnám að ræða þar sem nemendur vinna sjálfstætt undir hand-
leiðslu kennara. Námskeið þessi eru opin ötlum nemendum Háskólans. Um 60
nemendur skráðu sig í þau fjögur námskeið sem í boði voru á haustmisseri 1999.
Fyrri hluti ársins var einkum unnið að undirbúningi fyrir námskeiðin og voru
Bernd Hammerschmidt. Hólmfríður Garðarsdóttir og Rikke May fengin til að vinna
með deildarstjóra að þróun þeirra. Einnig var nauðsynlegum tækjabúnaði komið
upp og kennsluefni keypt. m.a. fyrir styrki sem Tungumálamiðstöðin fékk frá
sendiráðum Frakklands og Danmerkur hér á landi. Seinni hluti ársins snérist að
mestu um námskeiðahatd og í árslok fékk Tungumálamiðstöðin úthlutað fleiri
herbergjum í Nýja-Garði sem gerir henni m.a. kleift að bæta aðstöðuna fyrir
samtalstíma sem eru mikilvægur þáttur í námskeiðum miðstöðvarinnar.
18