Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 29
við 72 háskóla/stofnanir víðs vegar um heiminn. Af þeim áætlunum sem Háskót-
inn tekur þátt í er Sókrates-áætlunin umfangsmest og þarvegur Erasmus-áætl-
unin hvað þyngst. Mikið er um stúdentaskipti en einnig taka kennarar H.í. þátt í
kennaraskiptum, námsefnisgerð, halda námskeið í samvinnu við evrópska sam-
starfsaðila o.fl. H.í. er þátttakandi í samstarfsneti 23 háskóla í Evrópu. svonefndu
Utrecht-neti sem hefur gert samning við 16 háskóla í Bandaríkjunum um gagn-
kvæm stúdentaskipti. Þessir bandarísku háskótar mynda samstarfsnet sem í
daglegu tali er kallað MAUI-netið (Mid American Universities). Tungumátakennar-
ar og verðandi tungumálakennarar hafa tekið þátt í Sókrates/Lingua-áættuninni.
Kennarar H.í. hafa einnig tekið þátt í verkefni styrktu af Sókrates/Comeniusar-
áætluninni sem snýst einkum um skipulagningu á námskeiðum fyrir kennara.
Einn kennari H.í. tók þátt í verkefni á vegum Sókrates-áætlunarinnar sem fjallar
um opið nám og fjarnám. Starfsmenn H.í. hafa einnig tekið þátt í svonefndum
þemanetum innan Sókrates-áætlunarinnar.
Þátttaka H.í. í Nordplus-samstarfinu ereinnig umfangsmikil. kennarar H.í. taka
þátt í um 20 samstarfsnetum á um 15 fræðasviðum.
Einn starfsmaður Alþjóðaskrifstofu og forstöðumaður starfa náið með formanni
alþjóðaráðs Háskólans og öðrum ráðsmönnum eftir þvi sem ástæður gefast. sitja
fundi ráðsins. sjá um að kalla það saman og skrifa fundargerðir. Árið 1999 hittist
einnig að frumkvæði formanns Alþjóðaráðsins hópur starfsfólks í stjórnsýstu.
deildum og stofnunum sem kemur að alþjóðasamskiptum og framkvæmd þeirra
innan Háskólans. einkum því er lýtur að móttöku erlendra skiptistúdenta. Fulltrú-
ar frá Alþjóðaskrifstofu tóku þátt í þessu starfi.
Tvíhliða samningar
Háskóli íslands gerði tvíhliða samninga við eftirfarandi háskóla/stofnanir árið
1999:
North Park University lltinois, Bandaríkjunum: Trent University Ontario, Kanada:
University of Manitoba. Kanada: samtök rektora 19 háskóla í Quebec-fylki í Kan-
ada um gagnkvæm stúdentaskipti. University of Otaga, Nýja Sjálandi; Tokyo Un-
iversity of Fisheries: Reinmin University í Kína (sá samningur er á sviði lögfræði):
University of St.Cyrit Methodias Makedóníu (þessi samningur er við viðskipta-
deild): University of Barcetona á Spáni, (samningur við lyfjafræðideild). Einnig var
gerður samstarfssamningur um rekstur Sjávarútvegsskóta Sameinuðu þjóðanna.
Stúdentaskipti
Stúdentaskipti eru umfangsmikitl þáttur í alþjóðasamstarfi H.í. og starfi Alþjóða-
skrifstofunnar. Þeirsem hyggjast fara utan sem skiptistúdentar fá upplýsingar
um þá möguleika sem þeim standa til boða á Upplýsingastofu um nám ertendis á
Alþjóðaskrifstofunni. Umsóknum skila þeir á Atþjóðaskrifstofuna og sjá starfs-
menn skrifstofunnar um að koma samþykktum umsóknum til réttra aðita ertend-
is. Starfsmenn skrifstofunnar héldu á árinu fjölmarga kynningarfundi um stúd-
entaskipti. með stúdentum í einstökum deildum og eins í húsakynnum skrifstof-
unnar að Neshaga 16.
Skólaárið 1999-2000 fóru 139 stúdentar utan sem skiptistúdentar frá Háskóta ís-
lands og 174 ertendir skiptistúdentar komu til náms við Háskólann. Þátttaka stúd-
enta H.í. var með eftirfarandi hætti: Erasmus 95. Nordptus 39, aðrar áættanir eða
samningar fimm.
Móttaka erlendra skiptistúdenta
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins sér um móttöku erlendra skiptistúdenta. Um-
sóknir frá erlendum stúdentum berast á Atþjóðaskrifstofuna þar sem þær eru
skráðar og þeim komið áleiðis á deildarskrifstofur. Háskóli ístands er samkvæmt
samningum skuldbundinn tit að aðstoða erlenda skiptistúdenta við útvegun íbúð-
arhúsnæðis. Eftir því sem þeim fjölgar verður æ erfiðara að leysa þetta verkefni
svo vel sé. Stór hópur skiptistúdentanna óskar eftir því að fara á námskeið í ís-
lensku áður en hið eiginlega nám við skótann hefst. Alþjóðaskrifstofan hefur í
samvinnu við skor í ístensku fyrir erlenda stúdenta staðið fyrir slíku námskeiði í
ágúst. Stúdentar hafa greitt fyrir þátttökuna en styrkir hafa fengist til að niður-
greiða gjöldin fyrir hluta af stúdentunum. Kynningardagskrá um ísland og íslensk
málefni er fastur liður í móttöku erlendra stúdenta. Um þrír til fjórir atburðir eru
skiputagðir á önn. skoðanaferðir og fyrirlestrar. Á árinu var tekið upp samstarf við
Stúdentaráð um að útvega erlendum skiptistúdentum aðstoðarmann úr röðum
íslenskra stúdenta. sem taki að sér að leiðbeina erlendu stúdentunum við ýmis
hagnýt mál í daglegu tífi, sem á að verða til að auðvelda þeim aðlögun að nýju
umhverfi.