Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 36
Tölvumál
Árið 1997 notaði starfsmannasvið eingöngu Macintosh-tötvur. Fyrsta PC-vélin
kom 1998 og stefnt hefur verið að því að allt skrifstofufólk sviðsins fái PC-tölvur í
byrjun ársins 2000. Er þetta í samræmi við stefnu stjórnsýslu háskólans í tölvu-
málum og upptöku Lotus Notes skjalavistunarkerfisins á árinu.
Gerð nýs starfsmannakerfis er enn skammt á veg komin en áætlað er að vinna að
því á næsta ári. Fram að þeim tíma verður notast við gamla starfsmannakerfið
sem hannað er fyrir Macintosh.
Starfsþróun og starfsþjálfun
Farið er að gera auknar kröfur um hagræðingu í rekstri hjá opinberum stofnun-
um þar sem hugtök eins og gæða- og árangursstjórnun, stefnumótun og áætl-
anagerð eru í brennidepli. Starfsfótk við stjórnsýslu og þjónustu innan Háskóta ís-
lands vinnur margþætt störf þar sem menntun. þekking og starfsreynsla starfs-
manna er mismunandi. Þessi sérstaða gerir það að verkum að það er mikilvægt
að stuðla að því að starfsmenn fái nauðsynlega fræðstu og starfsþjálfun til að
geta sem best tileinkað sér breytta starfshætti.
Á árinu 1999 hófst átaksverkefni með það að leiðartjósi að endurskoða vinnuferli,
og efla þjónustu og samskipti. Byrjað var á tiiraunaverkefni fyrir starfsfólk í Aðal-
byggingu og í því tóku alls þátt um 50 manns. Þeim hluta lýkur í mars 2000.
Einnig hófst undirbúningur að sambærilegu verkefni fyrir starfsfólk deilda og
stofnana sem yrði nátengt fyrra verkefninu. Jafnframt var undirbúið þróunar- og
þjálfunarverkefni fyrir starfsfólk. sem starfar við umsjón. ræstingu. útleigu og
viðhald húsakynna og bygginga H.Í., auk þeirra sem starfa við tækniþjónustu og í
mötuneyti. í þessum verkefnum er áhersla lögð á samþættingu og gæðastarf.
Stefnt er að því að gæðaliðin í þeim tengist og vinni saman að áframhaldandi
verkefnum eftir að þjálfuninni lýkur. Ráðgjafarfyrirtækið „Skref fyrir skref' sér um
námskeiðshaldið í samvinnu við starfsmannasvið. Starfsmannafélag ríkisstofn-
ana styrkir þessi námskeið.
Mötuneyti Aðalbyggingar
I kjallara Aðalbyggingar er starfrækt mötuneyti fyrir starfsmenn í húsinu. í byrjun
ársins 1999 var gerð sú breyting á rekstrinum að Skólabær var sameinaður
mötuneytinu þannig að matráðskona mötuneytisins hefureinnig umsjón með
Skólabæ. Ýmsar skipulagsbreytingar tit hagræðingar voru gerðar í framhaldi af
því. Má þar einna hetst nefna breytta áherslu í matargerð og aukna umsýslu í
tengslum við fundi og móttökur á vegum rektors. Starfsmenn mötuneytisins eru
nú þrír, tveir í fullu starfi og einn í hlutastarfi.
Háskólasamvinna
Samvinna milli Háskótans á Akureyri. Kennaraháskóta íslands og Háskóla ís-
lands er byggð á samkomulagi frá 1997 um að skólarnir teitist við að styðja og
efla samvinnu um starfsmanna- og launamát sín og stuðli að sameiginlegri
fræðslu starfsfótks sem starfar á þessum sviðum. I febrúar var haldin sameigin-
leg námsstefna skólanna að Varmalandi í Borgarfirði. Yfirskrift hennar var: „Auk-
in og breytt verkefni fjármála- og starfsmannadeilda háskólanna". Fulltrúar frá
fjármálaráðuneytinu voru fyrirtesarar og fjölluðu m.a. um breytt vinnuveitanda-
htutverk við flutning á verkefnum frá ráðuneytum menntamála og fjármála til há-
skólanna.
Samráðsnefnd um kjaramál
Samráðsnefnd um kjaramál er skipuð af háskólaráði. Hún tók fyrst til starfa 1990
og hefur það htutverk að tryggja samstarf og samráð við þau kjarafétög sem
starfsfólk háskólans er aðitar að. Nefndin er skipuð þremur starfsmönnum Há-
skótans: háskótaritara, framkvæmdastjóra starfsmannasviðs og Gísla Má Gísla-
syni prófessor sem verið hefur formaður nefndarinnar frá hausti 1998. Tveir aðil-
ar eru tilnefndir af því kjarafélagi sem til umfjöltunar er hverju sinni.
Með síðustu kjarasamningum fékk samráðsnefndin aukið hlutverk og var henni
falið að vinna að aðlögunarsamkomutagi við kjarafélögin og starfa sem sam-
starfsnefnd þeirra eins og kveðið er á um í kjarasamningum.
Á árinu fór fram endurskoðun á aðlögunarsamkomulagi þriggja kjarafélaga af
þeim sex sem gert hafði verið samkomulag við. Þau voru Starfsmannafélag ríkis-
stofnana. Félag háskólakennara og Meinatæknafélag ístands. Samkomutag náðist
við ötl félögin um endurskoðunina. Veigamestu breytingarnar urðu gagnvart Fé-
lagi háskólakennara um endurskoðun á röðun vísindamanna og með samkomu-
32
1