Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 86
margt þarf að breytast eigi fjárhagur stofnunarinnar og möguleikar hennar á að
hafa áhrif á rannsóknir og rannsóknanám í heimspekideild að vera viðunandi.
Hugvísindastofnun var úthlutað tveimur milljónum króna í upphafi árs til að
standa straum af rekstri sínum. Þessi heimanmundur gerði stofnuninni kleift að
starfa út árið. Stofnunin fékk 600 þúsund krónur úr Tækjakaupasjóði og var því fé
að mestu varið til kaupa á þrem PC-tölvum og Ijósritunarvél. Hugvísindastofnun
fékk eina tölvu að gjöf, en hún var hluti af gjöf ACO til Háskólans.
Bókmenntafræðistofnun
Hlutverk. stjórn, starfslið og húsnæði
Meginverkefni Bókmenntafræðistofnunar eru að vera vettvangur rannsókna á
bókmenntum og annast útgáfu bókmenntatexta og fræðirita um efnið. ( stjórn
stofnunarinnarsitja tveir úr hópi fastráðinna kennara í íslenskum og almennum
bókmenntum og einn úr hópi nemenda í almennri bókmenntafræði og íslensku.
Fulltrúar kennara eru kosnir til tveggja ára í senn en ætlast til að hver þeirra sitji
tvö kjörtímabil, fyrri tvö árin sem meðstjórnandi en seinna tímabilið sem for-
stöðumaður. Stjórn stofnunarinnar skipuðu árið 1999 Kristján Árnason dósent.
forstöðumaður. Bergljót Soffía Kristjánsdóttir dósent. meðstjórnandi og Erna Er-
lingsdóttir sem fulltrúi nemenda fyrri hluta ársins en Arna Þorkeisdóttir síðari
hlutann.
Garðar Baldvinsson gegndi starfi framkvæmdastjóra uns hann sagði því lausu frá
og með 1. ágúst en hélt þó áfram að vinna sérstök verkefni á vegum stofnunar-
innar. Við hlutverki hans að öðru leyti tók forstöðumaður Hugvísindastofnunar.
Jón Ólafsson, enda óhætt að segja að við flutning skrifstofu Bókmenntafræði-
stofnunar um mitt ár úr Árnagarði yfir í Nýja-Garð hafi þessar tvær stofnanir
færst nær hvor annarri.
Útgáfustarfsemi á árinu
Sem fyrr beindist starfsemin einkum að bókaútgáfu og komu út tvær bækun Trú í
sögum. Um heiðni og kristni í sögum og samtíma Gunnars Gunnarssonar eftir
Höllu Kjartansdóttur. Þetta er 56. bindið í ritröðinni Studia Islandica. og er ritstjóri
hennar Vésteinn Ólason. Þá kom út þriðja bindið í ritröðinni Ungum fræðum þar
sem gefnar eru út framúrskarandi B.A.-ritgerðir. og varð fyrir valinu að þessu sinni
Maður undir himni. Trú í Ijóðum Isaks Harðarsonar eftir Andra Snæ Magnason.
Þá var unnið að útgáfu annarra verka sem eiga eftir að koma út síðar, og má þar
nefna Vísnabók Guðbrands í umsjá Jóns Torfasonar og Kristjáns Eiríkssonar og
Bókmenntavísi sem nemendur í bókmenntum hafa unnið að fyrir styrk úr
Nýsköpunarsjóði undir stjórn Garðars Baldvinssonar. Verkið hefur loks komist á
rekspöl á þessu ári, einkum eftir að Garðar gerði á því úttekt sem getur orðið
grundvötlur að frekari styrkveitingum og árangursríku starfi í kjölfar þeirra.
Heimspekistofnun
Forstöðumaður Heimspekistofnunar 1999 var Arnór Hannibalsson prófessor.
Stærsta verkið sem unnið var að á árinu hjá stofnuninni er heimspekileg orða-
bók. Fyrir því verki stendur Erlendur Jónsson prófessor og hafa nokkrir fram-
haldsnemar í heimspeki unnið með honum að því. Verkinu er nú að mestu lokið
og verður handritið væntanlega tilbúið til prentunar haustið 2000.
Þá hefur verið unnið að ýmsum öðrum verkefnum, m.a. íslenskri þýðingu á ritum
eftir Immanuel Kant, Aristóteles og Bertrand Russell. en of snemmt er að til-
greina neitt um útgáfuhorfur þeirra.
Málvísindastofnun
Almennt yfirlit
Hlutverk Málvísindastofnunar er að annast rannsóknir í íslenskum og almennum
málvísindum. Einnig gefurstofnunin út fræðirit í málvísindum og gengst fyrir ráð-
stefnum og námskeiðum.
82