Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Side 94
íslenskrar málnefndar skuli vera: Conseil de la langue islandaise og íslenskrar
málstöðvar: Centre de la langue islandaise. Samdar voru álitsgerðir um ýmis at-
riði í íslensku máli að beiðni ýmissa aðila.
Lífeðlisfræðistofnun
Lífeðlisfræðistofnun Háskóla íslands var komið á fót árið 1995 með reglugerð nr.
333/1995 og tók þá við hlutverki Rannsóknastofu í lífeðlisfræði sem starfrækt
hafði verið í þrjá áratugi. Forstöðumaður stofnunarinnar er Jón Ólafur Skarphéð-
insson prófessor. Stjórn stofnunarinnar að öðru leyti skipa fastráðnir kennarar og
sérfræðingar stofnunarinnar auk fulltrúa annarra starfsmanna og fulltrúa nem-
enda.
Starfsmenn stofnunarinnar 1999 voru. auk forstöðumanns: Guðrún V. Skúladóttir
vísindamaður. Jóhann Axelsson prófessor. Stefán B. Sigurðsson prófessor, Logi
Jónsson dósent. Sighvatur S. Árnason dósent, Þór Eysteinsson dósent, Þórarinn
Sveinsson dósent, Anna Guðmunds fulltrúi, Jóhanna Jóhannesdóttir rannsókn-
atæknir, Heiðdís Smáradóttir M.S.-nemi og aðjúnkt og Jóhannes Helgason M.S.-
nemi og aðjúnkt. Aðrir M.S.-nemar, verkefnaráðnir sérfræðingar og/eða stunda-
kennarar voru: Atli Jósefsson líffræðingur. Ólöf Ámundadóttir sjúkraþjálfari, Anna
Lára Möller sálfræðingur, Ragnhildur Káradóttir lífefnafræðingur, Sesselja
Bjarnadóttir tíffræðingur og Wendy Jubb líffræðingur.
Htutverk stofnunarinnar ertvíþætt. rannsóknastarfsemi og kennsla. Stofnunin
veitir öllum fastráðnum kennurum Háskólans í lífeðlisfræði rannsóknaraðstöðu.
hvar í deild eða námsbraut sem þeireiga heima, læknadeild, raunvísindadeild
eða námsbrautum í hjúkrunarfræði og sjúkraþjálfun. Einnig geturstjórn stofnun-
arinnar veitt vísindamönnum á öðrum fræðasviðum aðstöðu eftir því sem að-
stæður leyfa og efni standa tit. Öll rannsóknastarfsemi á stofnuninni er
fjármögnuð með sjálfsaflafé þar sem fjárveiting til rannsókna hefur enn ekki
fengist nema til að greiða fastráðnum starfsmönnum laun. Styrkir hafa einkum
fengist frá rannsókna- og tækjakaupasjóðum Háskólans og Rannís.
Starfsmenn stofnunarinnar vinna að rannsóknarverkefnum á ýmsum sviðum líf-
eðlisfræðinnar, s.s. starfsemi sléttra og rákóttra vöðva. stjórn btóðrásar. fituefna-
búskap. sjónlífeðlisfræði. starfsemi þekja. vatns- og saltbúskap. áreynslulífeðlis-
fræði. stýringu líkamsþunga. stjórn öndunar, öndunarstarfsemi í tungnasjúkling-
um. þolmörkum ýmissa umhverfisþátta hjá taxfiskum o.ft. Einnig er unnið að far-
aldsfræðilegum rannsóknum á hjarta- og æðasjúkdómum og skammdegisþung-
lyndi. Þá er nokkuð um þjónusturannsóknir.
Starfsmenn stofnunarinnar annast alla kennstu í lífeðlisfræði við Háskótann og
leggur stofnunin til aðstöðu og tækjabúnað til verklegrar kennslu. Að auki hefur
stofnunin tekið að sér að annast kennslu í lífeðlisfræðinámskeiðum þeirra náms-
leiða við Háskótann sem ekki hafa fastráðinn kennara í greininni. Þannig hefur
tekist að hatda nær allri starfsemi á sviði lífeðtisfræði innan Háskólans á einum
stað sem hefur ótvíræða kosti í för með sér. Veturinn 1998-1999 voru kennd á
vegum stofnunarinnar 15 námskeið og sóttu þau um 530 stúdentar. Jafngildir
þetta um 1900 þreyttum einingum sem að umfangi samsvarar fullu þriggja ára
námi um 20 stúdenta. Heildarvelta stofnunarinnar árið 1999 nam um 32 miltjón-
um króna.
Hádegisfundir Lífeðlisfræðistofnunar voru haldnir að jafnaði vikulega yfir vetrar-
mánuðina. Þar kynntu starfsmenn stofnunarinnar og M.S.-nemar rannsóknir sín-
ar auk þess sem gestafyrirlesarar héldu þar erindi af margvíslegum toga um líf-
fræðileg efni.
90