Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Blaðsíða 96
Lífefna- og
sa mei nda líffræðistofa
Almennt yfirlit og stjórn
Rannsóknastofan er starfsvettvangur kennara lífefnafræðasviðs læknadeildar auk
annarra sem stunda rannsóknirá skyldum sviðum. Forstöðumaður er Jón Jó-
hannes Jónsson dósent. Aðrir háskólakennarar sem starfa við fræðasviðið eru
Eiríkur Steingrímsson rannsóknarprófessor og Ingibjörg Harðardóttir dósent. Auk
þeirra hefur Reynir Arngrímsson dósent í klínískri erfðafræði aðstöðu á rann-
sóknastofunni. Umsjón með daglegum rekstri lífefna- og sameindalíffræðistofu
hefur Jónína Jóhannsdóttir deildarmeinatæknir. Á rannsóknastofunni störfuðu
tveir doktorsnemar. fimm M.S.-nemar, fimm B.S.-nemar og tveir læknanemar
sem vinna að 4. árs verkefni. Auk framangreindra unnu nokkrir einstaklingar í
lengri eða styttri tíma að ýmsum verkefnum.
Rannsóknir
Rannsóknastofan er miðstöð fyrir lífefna- og sameindaliffræðirannsóknir í grunn-
vísindum og læknisfræði. Almenn áherslusvið eru efnaskipti kjarnsýra, gena-
lækningar. þroskunarlíffræði. næringarfræði og samspil erfða og umhverfis. Unn-
ið er að einstökum verkefnum innan þessara sviða í samvinnu við innlenda og er-
lenda vísindamenn.
Níu nemendur luku verkefnum sem unnin voru við stofnunina á árinu.
Rannsóknastofan hélt áfram að byggja upp aðstöðu fyrir vinnu með transgenískar
mýs í samvinnu við Tilraunastöð Háskóla fslands í meinafræði að Keldum.
Á rannsóknastofunni er sérhæfður tækjabúnaður fyrir sameindalíffræðivinnu sem
jafnframt er notaður við klínískar rannsóknirá sameindaerfðafræði í samstarfi
við meinefnafræðideild Landspítalans.
Kynningarstarfsemi
Starfsmenn rannsóknastofunnar kynntu vinnu sína erlendis og innanlands með
þátttöku í ýmsum ráðstefnum og með einstökum fyrirlestrum. Rannsóknastofan
skipulagði einnig vísindafyrirlestra og fræðslufundi. m.a. í samvinnu við Miðstöð í
erfðafræði og meinefnafræðideild Landspítalans. Jón Jóhannes Jónsson vann í
nefnd á vegum Evrópubandalagsins sem gerði úttekt á stöðu erfðamengisrann-
sókna í Evrópu.
Helstu fræðigreinar birtar á árinu:
• Mao. N.-C.: Steingrímsson. E.; Duhadaway, J.; Wasserman. W.; Ruiz, J.C.;
Copeland, N.G.: Jenkins. N.A. og Prendergast. G.C. 1999. The murine Binl gene
functions early in myogenesis and defines a new region of synteny between
mouse chromosome 18 and human chromosome 2. Genomics, 56:51-8.
• Hurlin, P.J.: Steingrímsson, E.; Copeland. N.G.: Jenkins. N.A. og Eisenman.
R.N. 1999. Mga, a dual-specificity transcription factor that interacts with Max
and contains a T-domain DNA binding motif. EMBO Journal. 18:7019-28.
• Vitelli. F.; Piccini. M.; Caroli, F.; Franco. B.; Pober, B.; Jonsson. J.: Sorrentino, V.
og Renieri. A. 1999. Identification and characterization of a highly conserved
protein absent in the Alport syndrome (A). mental retardation (M). midface
hypoplasia (M). and elliptocytosis (E) contiguous gene deletion syndrome.
Genomics 55:335-40.
Annað
Rannsóknir stofunnar voru styrktar af ýmsum aðilum um alls á þriðja tug millj-
óna króna á árinu. Markverðustu styrkirnir voru tveir þriggja ára styrkir úr mark-
áætlun Rannís um upplýsingatækni og umhverfismát. Ingibjörg Harðardóttir er
verkefnisstjóri fyrir 10.5 milljón króna styrk sem nefnist „Tengsl fæðu. oxunar.
DNA-skemmda og brjóstakrabbameinsáhættu". Verkefnið er unnið í samvinnu við
vísindamenn hjá Krabbameinsfélagi íslands. Manneldisráði islands og Lífeðlis-
fræðistofnun Háskólans. Eiríkur Steingrímsson er verkefnisstjóri fyrir 9.0 milljón
króna styrk sem nefnist „Breytigen arfbundinnar járnofhteðslu á íslandi". Verkefn-
ið er unnið í samvinnu við blóðfræði- og meinefnafræðideildir Landspítalans.
Blóðbankann og Manneldisráð íslands.
Jón Jóhannes Jónsson hafði umsjón með styrkjum frá Rannís og styrkjum af
92